Ægir - 01.04.1931, Síða 20
90
ÆGIR
syðra og víðar niun kunnugt, hefui mðrg-
um smáskipum verið siglt milli landa i
skammdeginu, siðast liðinn vetur. Sigl-
ingar þessar ná engri átt. Aðvera40 — 50
daga á ferðum milli Danmerkur og Is-
lands á 20—30 tonna mótorbátum sýnir
ráðlagið. Utbúnaður bátanna getur verið
góður, en Atlantshafið er ávalt Atlants-
haf og heldur áfram að vera það.
Eg hef verið mér úti um stýri, sem
tekið var af einum þeirra báta, sem upp
var siglt í vetur, vona ég að það stýri
beri vott um hættu þá, sem fólki þvi er
stefnt í, sem fer i slikar siglingar, sem
œtti að bantxa með lögum, á hinum versta
tíma árs.
Slysatrygging rikisins ætti að athuga
þessar siglingar, ef þá svo er i garðinn
búið, að íslendingar þeir, sem gefa sig i
þær, séu nokkursstaðar skráðir.
Það er einhver hjúpur yfir sjóferðum
þessum, sem þyrfti að lyfta lítið eitt upp
og t. d. athuga hvort yfirmenn bátanna
hefðu þau réttindi, sem þessar millilanda-
siglingar útheimta; auk þess er engin
vissa fyrir, að öll skip, sem mönnum
dettur i hug að sigla hingað til lands,
séu tær i Atlanfshafsferðir að vetrarlagi
og ættu sjóvátryggingafélögin að hafa
auga með því og einnig bve margirsigl-
ingafróðir menn eru á ferðum þessum
og hvort próf þeirra leyfir þeim að veita
»vöku« forstöðu milli landa.
Vonandi athuga menn þetta og gera
einhverjar ráðstafanir, áður en stórslys
hljótast af.
Vetrardag síöasta 1931.
Sveinbjörn Egilson.
Aðflutningsgjald af fiski til Tunis.
í 3. tbl. Ægis þ. á., var skýrt frá hækk-
un þeirri, sem nýlega hefur orðið á að-
flutningsgjaldi á fiski til Frakklands. Sam-
kvæmt tilkynningu frá forsætisráðherra,
eru lögin um aðflutningsgjaldshækkun-
ina nú einnig gengin í gildi í Tunis.
Slysavarnafélag íslands.
Á öðrum stað i blaðinu má lesa um
strand togarans »Cap Fagnet« í Grinda-
vik, hinn 24. marz sl. og björgun skips-
hafnarinnar.
Þetta er merldsviðburður, þarsemþað
er í fyrsta sinni, sem björgun fer fram
hér á landi með tækjum, sem beinlínis
eru ætluð til björgunar.
Gefur þetta miklar vonir um, að línu-
byssurnar komi hér að góðum notum,
þar sem þeim verður við komið og ætti
björgun þessi að hvetja menn til að æfa
sig á meðferð þeirra, hvar sem þær eru
geymdar.
Slysavarnafélag Islands hefur fengið
myndjr af nokkrum þeim mönnum í
Grindavík, sem að björguninni unnu og
lánar nú Ægi þær; eru þær ekki hér
settar, til að heiðra þá mætu menn meira
en hinn stóra hóp, sem lagt hefur oftog
einatt lif sitt í sölurnar til að bjarga með-
bræðrum sínum frá sjódauða hér við land,
og aldrei hefur verið minnst og engar
myndir sýndar af, heldur eru þær settar
i samband við verk það, sem Slysavarna-
félag íslands hefur með höndum og nú
í fyrsta sinni kemst í framkvæmd, með
þeim árangri að 38 mönnum er bjargað
úr sjávarháska. Fregnin um þetta fer nú
til framandi Ianda og hlýtur að auka veg
og virðingu félagsins og hér heima fyrir
mun atvik þetta góð hvatning til fram-
kvæmda og það mun sannfæra menn, að
æfingar eru nauðsynlegar, ekki að gleyma
góðri meðferð og hirðing allra tækja, svo
allt sé i lagi þegar þeirra gerist þörf.