Ægir - 01.08.1931, Blaðsíða 3
Nr. 8.
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
24. árg.
Reykjavík. — Ágúst 1931.
Fiskimatið.
Haustið 1929 skipaði ríkisstjórnin nefnd manna til þess að gera tillögur um breyt-
ingar á fiskimatslögunum. í nefndinni voru: Kristján Bergsson forseti Fiskifé-
lagsins, Jón Magnússon yfirtiskimatsmaður, Jón Ólafsson bankastjóri, Lárus
Féldsteð hrm. og ólafur Thors framkvæmdarstjóri. Nefndin lauk störfum
snemma í vor. í júlí komu allir yfirfiskimatsmenn landsins og fiskifulltrúi
Helgi Guðmundsson á fund í Reykjavík, til þess að íhuga fiskimatið og tillögur
nefndarinnar.
Árangur af þessum störfum eru lög-
samþykkt og hér eru birt.
1. gr. Allur verkaður og óverkaður salt-
fiskur, sem út er flutlur héðan af landi
sem islenzkur fiskur, skal metinn og
flokkaður eftir gæðum af fiskimatsmönn-
um, undir umsjón yfirfiskimatsmanns.
Undanskildar eru þó smásendingar,
100 kg. eða minni, sem sendar eru í til-
raunaskyni eða að gjöf.
Saltfisk, sem veiðiskip fíytja sjálf til
útlanda, er eigi skylt að meta, enda hafi
fiskurinn eigi verið lagður hér á land.
Áður en verkaður eða óverkaður salt-
fiskur gengur kaupum og sölum innan-
lands, skal meta hann og flokka eftir
gæðum, ef hann er ætlaður til útflutn-
ings. Matsmenn skera úr, hvenær óverk-
aður saltfiskur er matshæfur.
Yfirmatsmennirnir skulu einnig hafa
umsjón með útskipun, hleðslu og með-
ferð fiskjarins í útflutningsskipunum og
gefa fyrirskipanir hér að lútandi, sem
þeim er skylt að hlýða, sem hlut eiga að
máli.
um fiskimat, sem Alþingi nú hefur
Hverri matsskyldri fisksendingu til út-
landa skal fylgja vottorð yfirfiskimats-
manns, ritað aftan á farmskírteinið.
Fyllri fyrirmæli um mat og meðferð
vörunnar, bæði við útflutning og í út-
flutningsskipunum, skulu sett í erindis-
bréf og reglugerð, sem atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytið gefur út.
2. gr. Atvinnu- og samgöngumálaráðu-
neytið skipar yfirmatsmennina og gefur
þeim erindisbréf. Skulu þeir hafa aflað
sér þekkingar á fiskimati, verkun og
meðferð fiskjar, annaðhvort með því að
hafa starfað sem fiskimatsmenn eða á
annan hátt.
Þeir skulu rita undir eiðstaf um, að
þeir vilji hlýða ákvæðum þeim, sem sett
eru viðvíkjandi starfi þeirra, og með al-
úð og kostgæfni rækja skyldur þær, sem
á þeim hvíla í stöðu þeirra.
Til þess að tryggja sem bezt samræm,
fiskimatsins í hinum ýmsu landsfjórð-
ungum, er svo ákveðið fyrst um sinni