Ægir - 01.08.1931, Blaðsíða 4
152
ÆGIR
að fiskifulltrúi Islands á Spáni og Ítalíu
veiti yfirfiskimatsmönnum aðstoð sína
og haldi fundi með þeim árlega, á þeim
tíma, er hagkvæmast þykir.
Verði ágreiningur um einhver atriði,
er máli skifta, milli þeirra, sker atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytið úr þeim á-
greiningi, að fengnum tillögum forseta
Fiskifélags íslands, formanns Félags ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda og full-
trúa sjávarútvegsnefnda Alþingis, sem
þær kjósa á þingi hverju til eins árs í
senn.
Fundarsamþykktir þessar og úrskurðir
skulu gilda jafnt reglugerð, enda hafi
ráðherra samþykkt.
3. gr. Yfirfiskimatsmenn skulu vera
þessir:
1. Yfirfiskimatsmaðurinn í Reykjavík.
Umdæmi hans skal ná yfir svæðið
austan frá Þjórsá vestur að Önd-
verðarnesi.
2. Yfirfiskimatsmaðurinnáísafirði. Um-
dæmi hans skal ná yfir svæðið frá
Öndverðarnesi norður til Reykjar-
fjarðar í Strandasýslu.
3. Yfirfiskimatsmaðurinn á Aureyri.
Umdæmi hans skal ná yfir svæðið
frá og með Reykjarfirði austur að
Langanesi.
4. Yfirfiskimatsmaðurinn á Seyðisfirði.
Umdæmi hans skal ná norðan frá
Langanesi suður að Hornafirði, að
þeim firði meðtöldum.
5. Yfirfiskimatsmaðurinn í Vestmanna-
eyjum. Umdæmi hanser Vestmanna-
eyjar og Vík í Mýrdal.
Laun yfirfiskimatsmannsins í Reykja-
vík skulu vera 4700 kr. auk 1000 kr. til
skrifstofukostnaðar. Laun yfirfiskimats-
mannanna á Isafirði, Akureyri og Seyð-
isfirði skulu vera 4000 kr. til hvers þeirra,
og laun yfirfiskimatsmannsins í Vest-
mannaeyjum 3300 kr. Allir skulu þeir
auk þess njófa dýrtíðaruppbótar sam-
kvæmt launalögum.
Tölu fiskimatsmanna má auka með fjár-
veitingu í fjárlögum, og verður þá gerð
nauðsynleg breyting á umdæmum þeirra
með konungsúrskurði.
4. gr. Fiskimatsmenn skipar lögreglu-
stjóri á hverjum fiskútflutningsstað, svo
marga sem yfirfiskimatsmaðurinn telur
þurfa og eftir tillögum hans. Þeir skulu
áður en þeir taka til starfa, rita undir
eiðstaf, sem atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið fyrirskipar.
5. gr. Þegar yfirfiskimatsm. tekst ferð
á hendur út fyrir lögsagnarumdæmi það,
sem hann er búsettur í, til þess að ann-
ast fiskimatsstörf i þarfir einhvers út-
flytjanda, skal útflytjandi greiða honum
ferðakostnað og fæðispeninga fyrir þann
tíma, sem hann nauðsynlega þarf að
vera að heiman í þeim erindum, hvort-
tveggja eftir reikningi, sem atvinnu- og
samgöngumálaráðuneytið úrskurðar, ef
hlutaðeigendur geta ekki komið sér
saman. /
Kaup fiskimatsmanna fyrir starf þeirra,
við fiskimat greiði eigendur fiskjarins
þeim, eftir því sem nánar verður ákveðið
í erindisbréfum fiskimatsmanna.
6. gr. Yfirfiskimatsmenn megaekki taka
á móti nokkurri þóknun, hverju nafni
sem nefnist, frá þeim, sem metið er fyrir,
frá skipstjórum á útflutningsskipum eða
öðrum, sem við skipin eru riðnir, ann-
ari en borgun þeirri, sem ákveðin er í
Iögum eða erindisbréfi þeirra.
Þeir mega ekki reka neinn sjálfstæð-
an atvinnuveg, sem lýtur að fiskverzlun,
né heldur vera í þjónustu þeirra, er láta
meta fisk til útflutnings eða hafa á hendi
umboðssölu eða kaup á fiski.
7. gr. Yfirfiskimatsmennirnir skulu
skyldir að ferðast um í umdæmi sínu
og utan þess, til þsss að leiðbeina í fiski-