Ægir - 01.08.1931, Qupperneq 5
ÆGIR
153
meðferð og fiskimati, líta eftir hvoru-
tveggja og kynnast því sem bezt. Þeir
hafa heimild til þess að banna fisksöltun
úr salti, sem þeir álíta ónothæft.
Á ferðum í þágu matsins, öðrum en
þeim, er um getur i 5. gr., fá þeir ferða-
kostnað greiddan úr ríkissjóði, eftir reikn-
ingi, sem atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið úrskurðar.
Á sama hátt fá þeir greiddar úr ríkis-
sjóði nauðsynlegan kostnað vegna til-
rauna með nýjar eða bættar verkunar-
aðferðir, rannsóknir á salti, geymsluþoli
fiskjar og öðrum tilraunum, er lúta að
auknu verðmæti hans, enda hafi ráðu-
neytið samþykkt, að slíkar tilraunir skyldu
gerðar.
Þeir fá einnig greiddan úr rikissjóði
nauðsynlegan símakostnað vegna fiski-
matsstarfa.
8. gr. Sá, sem flytur eða lætur flytja
út saltfisk án þess að láta meta hann
eða fá matsvottorð um hann, sæti 500
til 10000 króna sektum í ríkissjóð. Ef
um ítrekað brot er að ræða, má há-
markssekt vera allt að 20000 kr.
Um mál út af brotum þessum fer sem
um almenn lögreglumál.
9. gr. Sannist þær misfellur á votlorði
yfirfiskimatsmanns, er álíta verður að
stafi af vítaverðu gáleysi eða vanrækslu,
ber hann ábyrgð á tjóni því, er þar af
leiðir. Auk þess getur ráðuneytið svipt
hann stöðu sinni fyrirvaralaust. Þó telst
hann sýkn saka, geti hann sannað, að
einhverjir af undirmönnum hans eigi
sök á misfellunum. Bera þá hinir seku
undirmatsmenn ábyrgðina af tjóninu. Auk
ábyrgðarinnar má þá og svipta þá stöðu
sinni fyrirvaralaust.
Um hegningu fyrir brot yfirfiskimats-
manna og fiskimatsmanna gegn ákvæð-
um þessara laga fer að öðru leyti eftir
hinum almennu hegningarlögum.
10. gr. Með lögum þessum eru úr gildi
numin lög nr. 18, frá 19. júní 1922, um
fiskimat.
11. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Fiskveiðar Dana.
Bær má telja einn af aðalatvinnuveg-
um landsmanna, þar sem þær eru lífs-
starf um 13000 manna, auk þess sem
um 6000 manns eru að meira eða minna
leyti riðnir við þær. Fiskifloti Dana eru
um 650 stórir og um 5000 minni
mótorbátar; er aílur flotinn virtur
á 31 miljón krónur og veiðarfærin 18
miljónir. Árlega leggur þessi floti á land
90—95 miljónir kiló af fiski, sem ávalt
er fyrsta flokks vara og metin á 35—45
miljónir króna. Framleiðsla þessi, er
miklu meiri en seld verður til neyzlu í
sjálfu landinu, sem nú um stundir er
reiknað 40—45 miljónir kilo. Af þessu
leiðir, að Danir verða að koma afgang
á erlenda markaði, eða helmingi aflans.
Veiðarfæri Dana og margbrotnar aðferðir
þeirra við veiðar, eru sérstakar í sinni
röð og hafa náð þvi stigi að nefna má
þær sérfræði í fiskiveiðum.
Það sem sérstaklega greinir veiðiað-
ferðir Dana frá veiðum annara þjóða, er
eftirfarandi:
1. Það má svo heita, að flest dönsk
fiskiskip veiða með dragnót (á dönsku
nefnist veiðarfærið »Snurrevaad«, á ensku
»Danish sein« og á frakknesku, »la senne
danoise«), og lóðum og að eins fá nota
á sérstökum tíma ársins, smáar botn-
vörpur með 2 hlerum (otter boards).
2. Smábátum fylgja allskonar net og
tilfæringar, sem eiga við hið margbrotna
vinnulag við veiðarnar, auk þess staura-
nætur, gildrur og færi.