Ægir - 01.08.1931, Blaðsíða 9
ÆGIR
157
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórðungi
apríl—júlí 1931.
Samkvæmt venju minni undanfarin ár,
skal hér gefið stutt yfirlit yfir aflafeng-
inn á vorvertíðinni í veiðistöðvum fjórð-
ungsins, ásamt samanburði aflans nú og
vorið 1930.
Voraflinn i fyrra, var einungis talinn
yfir maí og júlímánuði, með því páskar
voru þá seint í apríl, en nú er allur apr-
ílafli talinn með vorvertíðinni. Verður
að hafa það í huga við samanburð vor-
eflans nú og þá. Á syðri Vestfjörðunum
hefjast fiskveiðar að jafnaði eigi fyr en
siðari hluta apríl, svo þar er um sama
veiðitíma að ræða. Fer hér á eftir afla-
fengurinn í hverri veiðstöð í þurfisks-
skippundum.
Flatey á Breiðafirði. 1 vélskip með 11
mönnum gekk þaðan á færaveiðar, mest-
an hluta vorsins og hafði aflað 175 skpd.
um miðjan júlí. Ennfremur hafði aflast
þar á nokkra smábáta um 130skpd. eða
305 skpd. alls.
í fyrra var aflinn á þilskipið talinn 225
skpd., en smábáta-afla eigi getið.
Víkur, ásamt vestanverðum Patreks-
firði. 1 vor gengu þaðan 11 smávélbátar
með 38 mönnum, og öfluðu þar til í
öndverðum júlí 430 skpd. 1 fyrra vor
voru bátarnir 16, og fengu að eins 320
skpd., enda talið þá í löku meðallagi. Nú
var aflinn mjög góður, einkum á Kolls-
vikinní og kringum Bjargtanga, enda á-
gætar gæftir.
Patreksfjörður. Þaðan gengu í vor 3
vélskip á færaveiðar með 27 mönnum
samtals, og 10 smávélbátar með 38 mönn-
um, svo og togarinn Leiknir.
Afli frá 1. april til 1. júlí 3630 skpd.,
þar af togaraafli 2440 skpd.
í fyrra voru þilskipin á færaveiðum 4,
og opnu vélbátarnir 11, og öfluð 2100
skpd., þar af togarafiskur 890 skpd.
Mismunur aflans stafar aðallega af því,
að aprílafli togarans er hér með, en í
fyrra taldist sá mánuður til vetrarver-
tíðarinnar, og nam hann nú 1230 skpd.
Færaskipin byrjuðu nú veiðar laust
fyrir 20. apríl og opnu velbátarnir nokkru
síðar. Aflabrögðin yfirleitt góð, einkum
fyrri hluta vorsins.
Tálknajjörður. 12 opnir vélbátar gengu
þaðan í vor með 4 mönnum hver, en í
fyrra voru bátarnir 14.
Afli frá sumarmálum til i öndverðum
júli um 900 skpd., en í fyrra 890 skpd,
Má það teljast mjög góður vorafli.
Arnarjjörður. Frá Bíldudal ganga nú
2 vélskip á færaveiðar, með um 30
mönnum, en i fyrra voru færaskipin 3;
svo gengu og í vor rúmir 20 opnir vél-
bátar víðsvegar úr firðinum, svipuð tala
og vorið áður.
Þilskipin lögðu á veiðar á sama tima
og undanfarið, laust fyrir 20. apríl, en
opnu bátarnir munu flestir eigi hafa
byrjað fyr en um mánaðamót (apríl—
maí.
Aflafengur frá 1. júlí talin 1325 skpd.,
en i fyrra um 1000 skpd. — Góður afli
á færaskipin, en tregfiski á opnu bátana.
Dýrajjörður. Af Þingeyri gekk nú línu-
veiðarinn Nonni, 1 vélbátur (Hulda) á
færaveiðar og 2 minni vélbátar, svo og
5—6 vélbátar til og frá úr firðinum, er
byrjuðu róðra í maí.
Afli frá 1. aprll til júlí talin 2010 sk-
pd. Nokkuð af því munu vera eftirstöðv-
ar af afla Nonna á vetrarvertíðinni.
í fyrra gengu frá Þingeyri 4 þilskip
með vél í, svo og Hulda, og 5 — 6 vél-
bátar, eins og nú. Aflafengur þessara
skipa yfir maí og júní talinn um 1000
skpd., og talið í góðu meðallagi. Línu-