Ægir - 01.08.1931, Side 11
ÆGIR
159
uðu þar miður. Voru þeir hættir veiðum
um eða fyrir miðjan júní.
Al/tafjörður. 1 vor gengu þaðan 6 vél-
bátar, 5 af svipaðri stærð og Hnífsdals-
bátar, en 1 um 14 lestir. — Ennfremur
lagði línuveiðarinn Fróði þar upp um
560 skpd., svo og vélb. Höskuldur um
170 skpd.
Aíli samtals frá byrjun apríl til júni-
loka 1848 skpd.
1 fyrra voru taldir þarna 5 vélbátar
sömu og nú, 1 vélb. ca. 30 lesta (Sæfari)
mestan part maí, svo lagði og Fróði þar
upp aílaslatta. Afli þá írá 1, maí til júlí
talinn alls 820 skpd., og var þá talinn
fremur rýr. Nú má teljast þarmjöggóð-
ur afli, þótt eigi komist til jafnsviðBol-
ungavík eða Hnifsdal.
Ögurnes og Ögurvík. Um 10—11 bát-
ar gengu þaðan, byrjuðu veiðar um miðj-
aíi apríl og fengu um 560 skpd. tiljúní-
loka.
í fyrra vor gengu þarna 5—7 smávél-
bátar og 2—3 árabátar og fengu þá 470
skpd. Voraflinn má nú teljast allgóður,
eftir því sem um er að ræða á þessum
stöðum, að jafnaði.
Snœfjallaströnd. 9 smábátar gengu það-
an í vor, þar af 7 með smávél, en munu
margir eigi hafa byrjað fyr en í maí.
Höfðu þeir fengið um 200skpd. ílokjúní.
1 fyrra vor voru bátarnir eigi taldir
nema 6 og öfluðu þá svipað, rúm 200
skpd., svo hér er um mjög rýran afla
að ræða. Enda eru og fáir menn á hvor-
um bát, eða um 23 alls á þessum bátum.
Aðalvík og Hornstrandir. Þaðan gengu
nú í vor 6 vélbátar 2—4 lesta, ogll —12
smávélbátar. Afli frá byrjun april til júní-
loka talinn um 1220 skpd.
Vorið 1930 gengu þarna 6—7 vélbátar
sömu og nú, og 11—12 opnir bátar, og
öfluðu þá yfir maí og júnímánuði 840
skpd. Aflabrögðin nú mega yfirleitt telj-
ast góð, smábátarnir stunduðu eigi allir
veiðar að staðaldri.
Gjögur. Skýrslur þaðan hef ég ekki náð
i ennþá, en lítið kvað hafa aflast þar til
þessa.
Sleingrímsfjörður. Par byrjuðu nú fisk-
veiðar í maí i vor, og var allgóður afli
þá um tíma, en lélegur er kom fram í
júní. Gengu þaðan 9 vélbátar, og höfðu
aflað um 490 skpd. í lok júlímánaðar.
Svo sem bert er af framanskráðum
upplýsingum, hefur voraflinn yfirleitt
verið með allra mesta móti — og meiri
en nokkru sinni áður í aðalveiðiplássun-
um. Bera þar sérstaklega af Bolungavík,
Súgandafjörður, Hnifsdalur og eigi sízt
ísatjarðarkaupstaður.
Bæði var það, að afli var óminnilega
mikill, svo voru og gæftir ágætar framan
af vori, meðan mest var fiskgengdin.
Beituskortur hamlaði og aldrei sjóferð-
um. Var fyrst beitt freðsíld, en um miðj-
an maí fékkst smásíld í vörpu á ísafirði
(innra), og nægði það sem eftir var ver-
tíðar. Pað stóðst og á endum að fshús-
in hér voru um það tæmd.
Fiskverð var nú hér í vor 10 aur. kg.
af blautfiski með með hrygg og ósund-
urgreindum. Saltfisksverðið er jafnan
nokkuð reikulla. Hjá Samvinnufélaginu
hér í bænum var skift með sama verði
og um páskana 22 aur. kg. af stórfiski
og 20 aura smáfiskur, fnllstöðnum. Sumir
munu hafa keypt fisk, bæði innlendan
og af norskum skipum, nokkuð hærra.
í fyrra vor var blautfisksverðið 15 aur.
kg. af stórfiski, og 12 aura af smáfiski.
Verð á saltfiski úr bátum varþáalmennt
hér 24 aura kg. af stórfiski, og 22 aur.
af smáfiski.
Hæztu fiskhlutir hér nærlendis eru sem
hér segir: í Súgandafirði, hjá Helga Sig-
urðssyni 1030 kr., og um 1100 kr. sé
»stúfur« skipverja talinn með.