Ægir - 01.08.1931, Qupperneq 12
160
ÆGIR
í Bolungavík, hjá Magnúsi Kristjáns-
syni, um 1000 kr.
í Hnífsdal hjá Hirti Guðmundssyni
tæpar 900 kr.
Hér á Isafirði er vélb. Ásbjörn (Har-
aldur Guðmundsson), hlutarhæztur, með
1250 kr. hlut, og aðrir samvinnufélags-
bátar: Sæbjörn með 1246 kr., Vébjörn
1143 kr., ísbjörn 1138 kr., Auðbjörn 1080
kr., Valbjörn 1047 kr., og Gunnbjörn
1037 kr. hlut. — Um hlutarupphæðir á
aðra stærri báta, er gengu héðan í vor,
Percy, Svölu og Gylfa, er mér ekki kunn-
ugt, en þeir eru nokkuru lægri en þessir.
Um fundahöld og starfsemi fiskideild-
anna er vitanlega fátt að segja um þetta
leyti.
Síðari hluta aprilmánaðar fór ég vestur
á firði, og héltfund í deildunum áTálkna-
firði og Patreksfirði um sumarmálin. Var
einkum á fundum þessum rætt um nauð-
syn ísfisksölu, síðari hlut sumars og f
haust, og áhugi hjá sjómönnum yfirleitt
að koma því að einhverju í framkvæmd.
Úr Patreksfjarðarkauptúni og frá ísa-
firði ganga nú einir 20 opnir bátar, og
auk þess víðsvegar úr vestanverðum Arn-
arfirði, um 20 bátar eða fleiri. Virðist
mér að þessi pláss öll, ættu að getahaft
samlög um sama flutningsskipið, og mundi
eigi, með sæmilegum afla taka marga
daga að fylla skipið. — Auk þess eru og
á Patreksflrði 3 vélskip, sem ganga á
færaveiðar í sumar, og mundu þau að
ég hygg, sinna þorskveiðum i haust, ef
tækifæri gæfist.
Smábáta-eigendur í Patreksfjarðarkaup-
túni, höfðu og á deildarfundum í vetur
rætt um stofnun félags eða samlags sín
á milli, og kosið nefnd til þess aðsemja
lög og leita frekari undirtekta í þessu
skyni. — Arngrimur Bjarnason mætti á
fundi þessum, skýrði málið og hvatti
til framkvæmda.
Nefnd sú er kosin var á téðum fundi,
lagði fram uppkast að lögum á fundin-
um í vor, og voru lögin samþykkt þá.
— Var ætlun forgöngumannanna, að
verka fiskinn í samlögum og fá þurkun-
arpláss leigt, og mynda síðan samsölu-
félag um fiskinn.
En ekki mun hafa tekist að koma fé-
lagsskap þessum á laggirnar í vor. Tekst
það þó vonandi innan skamms. Fiski-
mönnum á þessum slóðum, og einkum
þeim sem búa í kauptúnunum, er það
lífsspursmál, að bæta haginn með sam-
tökum um afurðasölu, og sölu ísfiskjar,
sem mundi vega mest, því sumaratvinn-
an ein á smábátum, er svo léleg, að hún
nægir eigi til framfærslu heimilis.
Þjóðinni og Alþingi er nú orðin ljós
hin mikla nauðsyn á sölu ísfiskjar, og
ráðstafanir eru nú í aðsigi með fyrir-
komulag á flutningum og sölu sliks
fiskjar. — Er vonandi að slíkt beri á-
kjósanlegan árangur, og komi hinum
smærri sjávarplássum að notum, eigi
síður en hinum stærri. — En því er ver
að þau gleymast oft, máske stundum
vegna samtakaleysis og skorts á for-
göngu ráðandi manna, uns orðið er um
seinan, kirkingur kominn i atvinnulifið,
og fólkið, sem því má við koma, flyzt i
burtu.
Fleira en því, sem hér er drepið á,
hefi ég sVo ekki að bæta við skýrslu
mína að þessu sinni.
Isafirði, 6. ágúst 1931.
Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum.