Ægir - 01.08.1931, Side 13
ÆGIR
161
f
Gísli J. Ólafson
landsímastjóri.
Hann andaðist á spítala í Kaupmanna-
höfn eftir uppskurð aðfaranótt hins 15.
ágúst.
Kaþólska kirkjan og
saltfisksverzlunin.
Saltfisksverzlunin síðustu árin hefur
aukiststórkostlega ogþráttfyrir hinamiklu
framleiðslu hefur fiskverð verið furðu-
lega stöðugt. Flestar vörur hafa fallið í
verði á heimsmarkaðinum og fiskur einn-
ig, og eftir stjórnarbyltinguna í Suður-
Ameríku fór eftirspurn eftir saltfiski að
verða minni og verðið hefur lækkað.
Síðan kom stjórnarbyltingin á Spáni,
konungurinn var rekinn frá völdum og
ýms hermdarverk framin, en þrátt fyrir
þetta má þó heita, að þetta hafi farið
friðsamlega fram, en spánska myntin
hefur þó fallið i verði, sem hefur haft
það í för með sér, að dregið hefur úr
innflutningi á fiski og orsakað truflun á
allri verzlun. Eins og flestum mun kunn-
ugt, eru kaþólskir menn, hinir mestu
fiskneytendur í heimi. Trúarbrögð þeirra
fyrirskipa, að þeir bragði ekki kjöt á
föstunni og neyta þeir því fisks í stað-
inn. Á þessum síðustu árum virðist svo
sem fyrirskipanir kirkjunnar, um matar-
æði á föstunni séu ekki haldnar eins og
þeir rétttrúuðu ætlast til, einkum í þeim
löndum þar sem spanska er töluð, og
hjá því getur vart farið, að saltfisksverzl-
unin líði við það.
Breskir fiskkaupmenn hafa orðið varir
við, að saltfisksflutningur til írlands hef-
ur minnkað mikið, siðan landið varð
fririki og eftir að áhrif kaþólsku trúar-
bragðanna urðu minni meðal lands-
manna, og hætt var að halda föstuna
eins stranglega og áður, með því að úti-
loka kjötið og láta fisk koma í þess stað.
Við hið sama þykjast menn verða varir
á Spáni nú. Það sem fram hefur farið á
Spáni undanfarið varðar jafpt ísland og
önnur fiskframleiðslulönd og eftir því
verður að taka, sem þar er að ske, og
reyna að leita uppi aðra markaði í tíma
skyldu þeir gömlu bregðast, eða breyta
verði verkunar- og söluaðferðum.
Kristján Andrésson
áttræður.
Þann 16. júlí síðastl., var einn af braut-
ryðjendum þilskipaútgerðarinnar hér á
landi, Kristján Andrésson skipstjóri og
óðalsbóndi í Meðaldal í Dýrafirði, 80 ára.
— Kristján lærði sjómannafræði á Bogö-
sjómannaskóla í Danmörku, veturinn
1883 — 84. Eftir heimkomu sina var hann
mörg ár skipstjóri á þilskipum aðallega
frá ísafirði, jafnframt því sem hann bjó
stórbúi í Meðaldal. Á vetrum kenndi
hann skipstjóraefnum sjómannafræði og
seglasaum heima hjá sér í Meðaldal, því
stýrimannaskóli var þá enginn hér á
landi. Flestir þeir sem lærðu hjá hon-
um voru hásetar hans á sumrum,
og má því segja að vera þeirra undir
handleiðslu hans var samanhangandi
skóli, enda urðu margir af lærisveinum
hans afburða stjórnarar og eftirsóttir
bæði af Vesturlandi og Faxaflóa.
Krislján er tvígiftur. Fyrri konu sína,
Friðrikku Benónýsdóttur, missti hann
eftir 3 ára sambúð. Seinni kona hans,