Ægir - 01.08.1931, Síða 14
162
ÆGIR
Helga Bergsdóttir, er enn á lífi og eiga
þau fjögur uppkomin og mannvænleg
börn.
Kristján er enn þá vel ern og munu
margir vinir hans minnast hans hlýlega
við þetta tækifæri.
(Mynd af Kristjáni er að finna í 5. tbl. Ægis
1923).
Skipauppsátur.
1 6. tbl. Ægis þ. á., bls. 129, skrifar
skipaskoðunarstjóri ólafur Th. Sveinsson,
grein með fyrirsögn »Skipauppsátur«.
Þar lýsir hann hvernig ástatt er hér í
bæ, þegar gera þarf við skip og bendir
á örðugleika þá, sem bæði erlendir og
innlendir skipaeigendur og vátryggingar-
félög eiga við að stríða, þegar skip þeirra
laskast, sem eru yfir 220 rúmlestir. Það
var eins og grein hans — og skrif ann-
ara væru undirstrikuð, þegar varðskipið
Óðinn lá hér í fjörunni fyrir skömmu
og smiðir voru að vinnu við hann, gera
við hann svo, að hann flyti til annara
landa, þar sem þeirra vinna er einskis
virði og flest rifið burtu, er aðalviðgerð
fer fram. Sama mátti segja erÆgirlask-
aðist og varð að leita viðgerðar erlendis.
Hér eru margir smiðir, sem kunna að
gera við það sem brotnað hefur, allt er
fyrir hendi, nema það eilt, að lyfta skip-
unum svo, að smiðirnir komist að þeim
hluta þeirra, sem skemmdur er, sé hann
undir sjó. Nú er óðinn að eins 512 smá-
lestir brútto og Ægir minni, 497 smál.
brútto og er hörmung til þess að hugsa,
að mikil vinna skuli fara út úr landinu,
þegar ekki er um stærri skip að ræða.
AUir togarar landsins verða að leita
til útlanda, þegar þeir fá botnskaða og
eins þegar þarf að mála þá í botninn.
Fer afarmikil vinna þannig útúrland-
inu og því einu að kenna, að hér vant-
ar dráttarbraut eða skipauppsátur.
Ekki má kalla það, að skrif þeirra
manna sem birtast nú, séu orð í tíma
töluð, heldur má fremur nefna það, í
mesta ótíma, þvi fyrir löngu hefði góð
dráttarbraut átt að vera komin hér, það
veigamikil, að ekki að eins hefði mátt
taka á land alla togara landsins, heldur
einnig þá togara, sem verða innan skamms
keyptir og að líkindum verða miklu
stærri skip, en hér eru nú. Innan fárra
ára, fara togarar landsins að ganga úr
sér og eru þá svo gamlir, að þeim er
ekki treystandi til þeirrar miklu vinnu,
sem af islenzkum togurum er heimtuð.
Hvernig fiskveiðum verður þá hagað,
vitum við ekki. Að líkindum hefur þá
Dieselvélin rutt sér svo rúm og sparn-
aður við hana svo auðsær, að diesel-
skip verða hér almenn. Svo er stærðin
og langur útivistartími; gæti hugsast að
einhver breyting yrði þar. Þegar talað
er um að koma upp dráttarbraut, verður
að hafa i huga breytingar þær, er á skip-
um kunna að verða hin næstu ár.
Hvar dráttarbraut á að vera, getur
verið álitamál og um nokkra staði að
ræða, t. d. Skerjafjörð, Yatnagarða og
fleiri, en sá staður, sem alheppilegastur
virðist vera, er Örfirisey, innan- hafnar-
garða, fengist sá staður.
Ef framtíðarskip íslendinga, yrðu eitt-
hvað í likingu við hin stóru frakknesku
og spönsku botnvörpuskip, sem sézt hafa
síðustu árin við ísland, og dráttarbraut
yrði gerð með þá skipastærð fyrir
augum, þá mætti einnig taka Eimskipa-
félagsskipin á land, en vafasamt gæti
verið, hvort viðgerð á þeim hér borgaði
sig, þar sem þau eru ávalt annað slagið
í útlöndum og eiga ávalt erindi þangað.