Ægir - 01.08.1931, Side 16
164
ÆGIR
t
Mr. D. H. Bookless.
Mr. Bookless dó á heimili sinu í Aber-
deen, í byrjun maímánaðar þ. á. Hann
rak hér fiskverzlun í fjöldamörg ár, en
var hættur fyrir skömmu. Dauða hans
har brátt að. Hann var að eiga við bil
úti í bilskúr sinum. Vissi kona hans af
honum þar, en er henni tók að lengja
eftir, að hann kæmi inn, gekk hún út í
skúrinn og lá þá Bookless þar örendur.
Gaseitrun varð honum að bana.
ísrek við Grænland
og ísland árið 1930.
12. skýrslan um isrek í höfunum kring-
um Grænland og ísland kemur á skap-
legum tíma, því að heimildarritið Nau-
tisk-meteorologisk Aarbogl930 er svo til
nýlega komið út.
Þetta ár var isinn í Norðurhöfum með
allra minnsta móti, og hefur hann þó
altaf verið lítill undanfarin 6 ár, þegar
um vorið og sumarið er að ræða.
í Barentshafi og kringum Spitsbergen
var óvenju lítill ís, jafnvel íslaust ábreiðu
svæði fyrir norður Spitsbergen frá þvi í
júní og virðist það hafa staðið í sam-
bandi við það, að óvenju mikinn ís rak
að austanverðri N-strönd Síbiriu og að
Beringssundi um sumarið. Annars var
norðvesturleiðin (fyrir norðan Ameríku)
óvenjulega íslaus og á Newfoundlands-
bönkum var ísinn óvenju snemma á ferð-
inni, kom og fór 1—2 mán. fyrri en
vant er. Á norðanverðum bönkunum var
meira um fjalljaka, en á þeim sunnan-
verðum, minna en vant er.
Eins og sjá má af meðfylgjandi kort-
um (meðal-útbreiðsla íssins sýnd eins og
áður með stykkjalínum), var ísinn við
Grænland mjög lítill, minni en undan-
farin ár, einkum við vesturströndina,
samfara því að fiskur gekk þar lengra
norður með en vant er (sbr. Ægi 6. tbl.
þ á., bls. 130). Við norðanverða A-strönd-
ina var mikill is á útmánuðum, en er
kom fram á, bráðnaði hann eða rak
suður með, svo að lítið var um ís við
A-ströndina yfirleitt, þegar kom fram á
sumarið. En við S-ströndina (kringum
suðurodda landsins) var allajafna mikill
ís. Vestur-isinn í Davissundi og Baffins-
flóa var lítill og langt undan um sum-
arið og íslaust að kalla langt norður
með, allt til Etah og langt norður í Lan-
caster-sund.
Við Island var isinn, eins og kortin
líka sýna, ekki nærgöngull þetta ár. Um