Ægir - 01.08.1931, Side 18
166
ÆGIR
mánaðamótin marz—apríl lá þéttur ís
allnærri landi á svæðinu milli Horns og
Kolbeinseyjar, en sást víst aldrei af landi.
Svo hvarf hann og varð ekki frekara
vart við ís til ársloka.
Sjávarhitinn við ísland, sem undan-
farin ár hafði verið töluvert hærri og
sumstaðar, eins og við N og A-strönd-
ina, mikið hærri en venjulega, var nú
orðinn svipaður því sem vant er viðast
hvar, nema helzt við N-ströndina, þar
sem hann var yflrleitt 1—2° stigum hærri
kaldari hluta árins, desember—maí.
B. Sœm.
Strand „Barðans“.
Togarinn »Barðinn« R. E. 274,416 br.
smálestir, smíðaður í Englandi 1913 (hét
áður »Clementine«), strandaði kl. 1 e. h.
þann 21. ágúst á Þjótnum við Akranes.
Eigendur skipsins eru h.f. Heimir.
Það hafði verið á veiðum nokkra daga
og var búið að fá um 800 körfur af ís-
fiski, ætlaði til Akraness og taka þar
kunnugan mann, sem átti að leiðbeina
skipstjóra nokkra daga, eða þar til hon-
um þætti afli nógur, sem átti að selja á
Englandi.
Kl. rúmlega 1 e. h., kom fyrsta skeyti
frá skipinú um, að það væri strandað á
F’jótnum, og beðið um Magna til að-
stoðar. Kl. 31/! kom næsta skeyti sem
segir að sjór sé kominn 1 skipið og beðið
um að senda togara sem hér lá á höfn-
inni til þess að reyna að draga skipið
út. Kl. 47a kom síðasta skeytið, sem segir
að ljósvél sé að fara í kaf. Útfall var
á meðan á þessu stóð.
»Magni« byrjaði að dæla kl. um 6 e.
h. og þá hallaðist skipið svo, að skip-
stjóri á »Magna« vildi ekki hætta á, að
vera við þá hlið, sem það lá á, því fram-
endi var svo siginn og afturhluti reis svo
hátt, að útlit var helzt til, að skipið gæti
á hverri stuudu steypzt ofan af klettin-
um, og mátti þá búast við að »Magni«
fylgdi með. Kl. 2—3 um nóttina, rann
skipið þannig ofan af klettinum, að fram-
stefni náði botni á c. 12 metra dýpi, aft-
urpartur stóð hátt í loft upp, svo hæll
var fyrir ofan sjó, hefur því hvilupunkt-
ur verið undir ketilrúmi. Pá var hætt að
dæla og »Magni« tók skipshöfn til Reykja-
víkur. Þegar skipið rann á klettinn var
logn og skinandi fagur sumardagur. Á
laugardag 22. ágúst var ekkert átt við
skipið og ekki farið á vettvang, því það
stóð enn í sömu stellingum og um nótt-
ina og talinn lífsháski að fara að þvi.
Sunnudaginn var NV sveljandi og braut
þá svo á Þjót, að skipið hlaut að renna
af klettinum, væri ekki annaðhvort klett-
ur í gegnum það, eða það rigskorðað á
sjálfum klettinum, sem það riðaði á.
Mánudaginn 24. fór varðskipið »Ægir«
að »Barðanum« og á bát var farið að
skipinu, mælt dýpi kringum það og kom-
ist að á hverjum klettinum það stóð.
Þjóturinn eru tveir klettar ámóta stórir
hvor um sig eins og 20—30 smálesta
mótorbátur og liggja í c. NA—SV og
milli þeirra eru 10—12 metra dýpi og
breidd sundsins milli þeirra um stjórn-
færislengd.
Mið á Þjót eru:
Hafnarfjallarœtur um torfuna vestur af
Jaðarbæ (JaðriJ og Brautarholt laust við
Esjuháls, en innsigling á Krossvík er :
Klöppin á Langasandi [eða Garðahúsið
um vestri Pitia, þ. e. rœtur Akrafjalls.
Það þarf ekki mikinn vind til þess að
hrjóti á Þjót og flestir þeir sem um Faxa-
flóa fara að staðaldri, þekkja þau sker,
en þegar »Barðinn« rann upp á klettinn,
var engin alda, sól og sumar. 25. ágúst
var SV 3; þá braut á Þjót og sjórinn