Ægir - 01.08.1931, Side 19
ÆGIR
167
skellti skipinu af klettinum niður i
djúpið.
Eigendur skipsins verða fyrir miklu
tjóni, því auk annars, höfðu þeir nýlega
látið setja yflrhitun í vélina, í Þýzkalandi
og kostað til þess um 40 þús. kr.
B. s. Frobisher frá Hull. Skip þetta
strandaði við Leirhafnartanga hinn 1.
febrúarþ. á., lá þar lengi í fjörunni þar til
varðskipið Ægir náði því út í vor og
flutti það til Reykjavíkur.
Var fyrst talað um að selja skipið hér,
en boð það sem hér fékkst, þótti of lágt.
Var svo gert við skipið eftir föngum hér
í fjörunni, svo það flyti heim og i júní
kom hingað dráttarbátur, sem dró það
til Englands.
Fyrir sjórétti, sem haldinn var í Hull,
voru lagðar 32 spurningar fyrir skip-
stjórann. Þessum spurningum var þannig
háttað, að einn af sjódómsmönnunum
sagði, að í raun réttri hefðu spurningar
verið 103. Hann gat þess einnig, að skip-
stjórinn hefði reitt sig of mikið á ágizk-
un og ekki notað siglingaþekkingu
sína eins og honum bar sem sjómanni,
aldrei rennt út lóði til þess að kynna
sér dýpi og ferðalag hans hefði verið
handabófssigling. Skipstrandið væri hon-
um að kenna; sökum vanrækslu hans
hefði skipið runnið á land. Fyrir þetta
voru réttindi skipstjórans tekin af hon-
um í níu mánaði.
Stýrimaðurinn fékk ofanígjöf, en rétt-
indum hélt hann, þótt hann hefði einnig
sýnt kæruleysi í einu og öðru — frá því
skipið fór fyrir Horn um kl. 4 e. h. hinn
31. janúar, þar til það stóð.
Varðskipið „Doon“. — Breska varð-
skipið »Doon«, sem hér hefur áður ver-
ið við land, var í byrjun ágústmánaðar
i viðgerð í Portsmouth. Það á að fara
til Islands hinn 1. september og gæta
þar hagsmuna enskra togara — og hafa
umsjón með þeim.
Á skipið að dvelja hér við land sex
vikna tíma.
Sigurður Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri varð sextugur 5. ágúst. I tilefni af
því var honum haldið samsæti um kvöldið
á Hotel Borg, og tóku þátt í því um
100 manns. Fjöldi samfagnaðarskeyta og
ávarpa barst Sigurði þennan dag, frá fé-
lögum og einstökum mönnum innan
lands og utan, ennfremur heiðursgjafir,
frá Ræktunarfélagi Norðurlands o. fl.
Hefur Sigurður, að verðleikum, hlotið
alþjóðárviðurkenningu fyrir hið mikla
starf sitt, í þágu 1 andbúnaðarins á Is-
landi.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1931. — Nr. 6.
15. Á Geldinganesvitanum (nr. 20).
verður ekki kveikt framvegis.
16. Baujan norður af Viðeyjarboða
(sjómerki nr. 9) verður ekki lögð útaft-
ur.
17. Á Selvogsvitanum (nr. 101) hefur
verið kveikt aftur, og er hann nú í nýja
vitahúsinu, sem er grár steinsteyptur
turn með gráu ljóskeri, 18 m. á hæð.
Vitinn stendur 140 m. i stefnu N. a. A.
frá gamla vitanum. Gamla járngrindin
verður rifin. Einkenni vitans eru óbreytt,
2-leiftur á 10 sek. bili.
Reykjavík, 8. ágúst 1931.
Vitamálastjórinn
Th. Krabbe.