Ægir - 01.08.1931, Page 22
170
ÆGIR
„Barömn".
Mynd sú, af togaranum
»Barðinn«, sem hér birt-
ist, er tekin af skipinu
þar sem það lá á Þjót,
laugardaginn 22. ágúst.
Togarinn er nú dottinn
niður af skerinu og horf-
inn í djúpið.
Sjóréttur var haldinn
þann 27. sama mánaðar.
Grænlandsdeilan. Það er talið senni-
legt, að Harald Scavenius, danski sendi-
herrann í Haag, og Steglich-Petersen
hæstaréttarmálaflutningsmaður flytji mál
Dana fyrir alþjóðadómstólnum í Haag.en
málið kemur sennilega fyrir dómstólinn
í október næsta ár (1932). Samt er nú
þegar farið að semja málsókn Dana og
er það skjal samið af Dr. Georg Cohn,
en hann er ráðunautur utanríkisstjórn-
arinnar og af Gustav Rasmussen, sem
var sendisveitarritari í Bern 1924 þegar
gerður var Grænlandssamningurinn við
Noreg. Pegar málið kemur fyrir Haag-
dómstólinn ætla Danir að hafa þar sér-
fræðinganefnd málflutningsmönnum sín-
um til aðstoðar og m. a. verður í henni
Daugaard Jensen forstjóri grænlenzku
stjórnarinnar.
íslendingar og Grænlandsmálið. For-
sætisráðherra tilkynnir, að um sama leyti
sein rætt var um Grænlandsmálið á Al-
þingi, hafi honum borist skeyti frá Haag
þess efnis, að Grænlandsdeilu Norð-
manna og Dana hafi verið vísað til al-
þjóðadómstólsins þar. Tilkynnir forsætis-
ráðherra ennfremur, að ráðuneytið hafi
þá þegar símað til Haag og lýst þviyfir,
að Islendingar teldu sig hafa hagsmuna
að gæta í sambandi við málið.
Hefir nú Einari prófessor Arnórssyni
verið falið að gera skýrslur um Græn-
landsmálið og koma fram með tillögur
að því lútandi.
Petta hefur forsætisráðherra gert í sam-
ráði við utanríkismálanefnd.
Landskjálfta varð vart áýmsumstöð-
um á Suðurlandi 23. þ. m. og voru þeir
allsnarpir víða.
t»ór tók nýlega enskan togara, Iltonion
í landhelgi á Skjálfandaflóa, en þurfti að
skjóta 18 aðvörunarskotum áður en tog-
arinn stansaði. Hann hafði nær fullfermí
af ýsu og kola.
í útflutningsnefnd sildareinkasölunn-
ar eru kosnir Einar Árnason alþm., Böðv-
ar Bjarkan og Björn Lindal, en til vara
Ingimar Eydal, Þormóður Ej'jólfsson og
Stefán Jónsson.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentamiSjan Gutenberg.