Ægir - 01.08.1931, Page 24
ÆGÍR
PHILIPS-útvarpstæki og öryggi á sjónum
Nú orðið er það álitið sjálfsagt að öll skip og bátar hafi út-
varpstæki um borð, til öryggis. Geta skipverjar þá altaf fylgst
með veðurfregnum, sem daglega er varpað út og eins viðvörun-
um, þegar vont veður er í aðsigi. Verður að vanda mikið til
tækjanna, og þau að vera ábyggileg. Það sem sérstaklega þarf
að taka til greina, aðallega við minni báta, er þetta:
1. Tækin verða að vera ábyggileg og þola hristing.
2. Þau mega ekki vera of stór sökum lítills rúms um borð.
3. Þau verða að vera svo einföld í meðferð að hvaða skipverji
sem er, geti farið með þau.
4. Þau verða að vera svo langdræg að útvarpsstöðin heyrist vel,
hvar sem báturinn er staddur.
Allar upplýsingar viðvíkjandi PHILIPS tækjum, gefúr gegningar-
stöðin og ættu útgerðarmenn að kynna sér þau, áður en þeir
festa kaup á tækjum.
PHILIPS RADIO GEGNINGARSTOÐ Á ÍSLANDI
LÆKJARGOTU 2 (UPPI) REVKJAVÍK
LANDSSMIÐJA ÍSLANDS
= REYKJAVÍK
FRAMKVÆMIR:
SMÍÐI á brúm og vitum, kötlum, olíukössum og geymum,
túrbínum og túrbínupípum, skjalaskápum og eldföstum hurð-
um, bátauglum, mótorbátum, smábátum o. fl.
ALLSKONAR VIÐGERÐIR á skipum, mótorbátum, og
smábátum bæði tré og járn, vélum og hverskonar mótorum.
Fullkomnustu vélar notaðar í hverri grein.
Öll vinna framkvæmd af sérfróðum mönnum við lægsta verði.
Jafnan fyrirliggjandi — allskonar smíðajárn og stál, enn-
iremur mjög gott verkfærastál.
Fyrirspurnum svarað greiðlega og tilboð gefin ef óskað er.