Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 6
Í94
ÆGIR
þeim um megu að leggja til jafnmikið
af veiðarfærum og beitu einsoggert hef-
ur verið undanfarandi, en sé mikið úr
því dregið, þá er auðvitað ekki hægt að
búast við eins miklum afla, en þar sem
bátarnir eru til og nokkuð af veiðarfær-
um, en hins vegar þörf fyrir atvinnu,
verður auðvitað að finna leiðir til þess
að halda bátunum úti þann tíma,sem
þeir eru þess megnugir að fæða það fólk,
sem við þá er bundið.
Það er að vísu talið neyðarráð aðdraga
úr framleiðslu, til þess að hækka verð
framleiðslunnar á þann hátt, en með
vöru sem illa þolir að liggja frá ári til
árs, eins og saltfiskurinn, er ekki um
annað að gera, fyrir það sem um-
fram aflast, en reyna að linna sölu-
markaði annarsstaðar, og eru nú tölu-
verðar tilraunir gerðar á þessu hausti
með flutning á ísfiski til Englands, og
verður þeim tilraunum vonandi haldið
áfram þó við ýmsa örðugleika verði
þar að eiga i byrjun.
Það er þvi ekki ólíklegt.þar semsama
og ekkert verður saltað af fiski hér, það
sem eftir er ársins, og fyrirsjáanlegt er
að næsta árs framleiðsla hlýtur að verða
mikið minni en undanfarandi, að salt-
fisksverðið fari að hækka strax upp úr
áramótum, enda verður gengislækkunin
búin að standa svo lengi, að áhrifa henn-
ar á að fara að gæta við fiskverðið, enda
verða þær fiskbirgðir sem þá verða eftir
hér innanlands á svo fárra manna hönd-
um, að draga fer úr þessum samkeppnis-
framboðum sem nú eru, þar senn hver
býður niður fyrir annan, til þess að losna
við framleiðslu sína á einhvern hátt.
Fiskverkunin hefur allstaðar gengið
vel á árinu og mestallur fiskur sá, sem
í landinu liggur nú, er verkaður og kom-
inn í hús. Rvík 17. ok t. 1931.
K. Bergsson.
E.s. Namdal R. E. 260.
Laugardaginn 14. febrúar 1931 var um
morgun, vindur á sunnan 3 og veður-
spá fyrir næstu 2 dægur:
vAllhvass og sumslaðar hvass á suð-
vestan og sunnan með slgdduveðri í dag,
en gengur sennilega í norðvestrið eða
norðrið með hvössum hríðaréljum i nótt«.
Eftir hádegi fór að herða vindinn og
kl. 6 um kvöldið var komið útsynnings-
rok. Um kl. 7 fréttist til Reykjavíkur, að
línuveiðaskipin »Eljan« og »Namdal«
hefðu slitnað frá hafnarbryggjunni í Hafn-
arfirði og lent á hinni nýju bryggjuinn-
ar á höfninni og væru bæði að brjóta
sig og hana.
Er á leið nóttina hægði veðrið, gekk
fyrst í vestur og var, er birti, kominn
norðvestan strekkiugur. Voru þá bæði
skipin brolin mjög og þeim varð að koma
á öruggan stað, sömuleiðis koma í veg
íýrir, að þau skemmdu bryggjuna frekar
en þau höfðu þegar gert — og voru þau
þvi flutt suður í fjöruna við Flensborg
og gengið frá þeim þar.
Mánudaginn 16. fehrúar voru skipin
skoðuð og athugað, hvort auðið væri að
gera við þau og að sú viðgerð, færi ekki
fram úr vátryggingarupphæð skipanna.
Um morguninn föstudaginn langa, var
vestan brim og flóðhátt mjög. Þá slitn-
uðu festar skipanna og lenti þeim sam-
an og börðust þannig þar til lækkaði í
sjó, svo þau stóðu, þá höfðu skoðunar-
menn skilað áliti sinu um Eljuna og úr-
skurðað hafði verið, að ekki yrði við
hana gert, sömu urðu úrslit um »Nam-
dal« — siðar. Á uppboði, sem svo var
haldið, fór skipið fyrir 1300 kr. og urðu
hæztbjóðendur Guðmundur Hróbjartsson
og Bjarni Gíslason, báðir í Hafnarfirði.
Nú víkur sögunni að þvi, að seint i