Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 7
ÆGIR
195
júní kemur norskt selveiðaskip sem hér
var við hákarlaveiðar, til Hafnarfjarðar.
Skipstjóri þess og vélamaður brugðu sér
á land til að skoða »Namdal« og buðu
eigendum 3000 kr. fyrir skipið, þó ekki
nema að þeim tækist (Norðmönnum) að
koma því á flot.
Tóku þeir svo þegar til að róta möl-
inni burtu, sem safnast hafði kringum
skipið, en misstu straum svo skipið flaut
ekki fyr en hálfum mánuði siðar. Eitt-
hvað var unnið í skipinu við vélina og
fleira, þennan tíma, en er áflotvarkom-
ið, fór skipið upp að bryggju, tók neyzlu-
vatn og vatn á ketil og var að svobúnu
lagt út á höfn. Pegar hér var komið,
mun skipaskoðunarmaður ríkisins hr.Ól.
Th. Sveinsson hafa veríð að spurður,
hvort skipið væri að hans áliti, í því
standi, að draga mætti það yfir hafið til
útlanda, og svaraði hann þvi á þá leið,
að slik skip yrðu að sýna ljós á nóttum
og til þess, að svo gæti orðið, yrðu menn
að vera í skipinu, en það áleit hann ekki
geta komið til mála eins og þá stóð á,
en ætti að halda flutningi skipsins til út-
landa til streitu, vildi hann láta draga
skipið upp í slippinn, þar sem unnt væri
að skoða það og mæla þá með eða móti
flutningnum, eftir atvikum, og bannaði
að skipið færi eins og það var.
Eftir að »Namdal« var búinn að taka
vatnið lá hann á höfninni og sáu menn
úr landi, að 2—3 menn voru á skipinu,
en selveiðaskipið hvarf af höfninni og
fréttist til Hafnarfjarðar að það væri að
taka kol í Reykjavik. Ekkert bólaði á
því, að Namdal ætti að fara á slippinn, en
eftir tveggja daga fjarvist kom selveiðar-
inn aftur til Hafnarfjarðar, og lagðist þar.
Það kvöld fóru menn að hátta á tím-
anum milli 10—11 og láu þá bæði skip-
in á höfninni, en um fótaferðartíma
næsta morgun, voru þau bæði farin á leið
til Noregs. Enginn maður hafði verið
settur út á skipið, til þess aðhaldavörð,
svo skipið ekki væri tekið til dráttar fyr
en fyrirskipan skipaskuðunarstjóra hafði
verið framkvæmd og virðist í fljótu bragði
sem eigendur hafi stolist burtu með það,
en þó skal það ei fullyrt hér, að svo
stödddu. Skipstjóri lét þau orð falla í
Hafnarfirði, að fyrir tiltölulega lítið fé,
gæti hann fengið viðgerð á skipinu, í
Noregi, svo það yrði sjófært, og er ekki
ótrúlegt, eftir þvi að dæma, sem við-
gerðir eru sagðar þar ódýrar, sé rétt að
farið.
íslendingar geta nú átt von á að »Nam-
dal« verði bráðlega falur, fyrir 50—60
þús. kr., þurfi þeir á línuveiðabát að halda.
Iier kan du se Grejer, Far!
Sveinbj. Egilson.
Um síldarrannsóknir 1931.
Það er ekki ætlun mín að gefa hér ná-
kvæmaskýrslu um síldarrannsóknirFiski-
félagsins á þessu ári, því í fyrsta lagi
hef ég ekki likt þvi enn þá unnið úr
öllum þeim gögnum, sem safnað hefur
verið til rannsóknanna, i öðru lagi eru
ekki »öll kurl komin til grafar« enn,
hvað gögnin snertir, og í þriðja lagi mun
ég siðar gera ítarlega grein fyrir síldar-
rannsóknunum og útkomu þeirra, alveg
eins og öðium liðum rannsóknanna,
þegar rannsóknum ársins er lokið, í
byrjun næsta árs. Rað sem hér birtist
lesendum »Ægis«. er lítilsháttar yfirlit
yfir hvernig rannsóknunum hefur verið
hagað, og svo aðaldrættír útkomunnar,
einkum að því er snertir stærð síldar-
innar.
Tveir liðir f rannsóknum okkar falla
óbeinlínis inn undir hugtakið síldarrann-