Ægir - 01.10.1931, Side 21
ÆGIR
209
Ný botnvarpa.
(Efter „Svensk Fiskeritidende" okt. ’31)
Það hefur ekki verið auðvelt að athuga
það beinlínis, hvernig venjuleg botnvarpa
(Otter Trawl) fer i sjónum. Pó hafa menn
reynt að gera sér grein fyrir þvi, með
þvi að bera saman afla með mismun-
andi tilhögun, eða með því að athuga
hvernig botnvarpan fer, þegar hún kem-
ur upp úr sjónum. Nú hefur hollenzkt
veiðarfærafélag, N. H. De Voigt, látið
gera tilraunir á veiðarfæratilraunastöð-
inni í Amsterdam. Það sem vakað hefur
fyrir félaginu, er að framleiða botnvörpu,
sem væri veiðnari og léttari í drætti en
sú, sem nú er notuð, en þó jafn einföld
að gerð. Við þessar tilraunir kom það í
ljós, að vanaleg botnvarpa kiprast víða
saman, vegna mismunandi þrýstingar á
ýmsa hluta vörpunnar, þegar hún er
dregin, en af því verður hún einmitt
þyngri i drætti. Auk þess er þeim hlut-
um vörpunnar, sem ekki verða fyrir mik-
illi þrýstingu, hætt við að sveiflast fram
og aftur, og fæla fiskinn, og loks lendir
dráttarátakið aðallega á hliðum vörp-
unnar. Eftir tilraunum í Amsterdam og
Norðursjónum hefur félagið nú látið búa
til botnvörpu af nýrri gerð, og hefur hún
gefið ágætan árangur í Norðursjónum.
Félagið hefur fyrst og fremst reynt að
forðast allt það, sem fælt getur íiskinn,
og því meðal annars komið hlerunum
fyrir á sérstökum línum (sjá myndina).
Annars er gerð hleranna og útbúnaður
þeirra nokkuð öðruvísi en tíðkast hefur.
Við tilraunir hefur það komið í ljós, að
nýja botnvarpan er helmingiléttaril drœtti
en sú vanalega.
Skarkolaveiðar í Norðursjónum.
(Bovbjerg 29. sept. 1931). Hina síðustu
viku hefur veðrið verið mjög gott og
hafa fiskiskipin notað tækifærið og veitt
skarkola vestur og út af Bovbjerg. Hafa
sum skipin farið tvær veiðiferðir þá viku
og eitt skipið þrjár, og fékk 2000, 2200
og 800 pund (hálft kilo) af skarkola, sem
fluttur var á land lifandi.
Verð á kolanum var 18—20 aura pd.
Eitt skipið aflaði 4000 pd. af skarkola
og fékkst fyrir hvert pund 12—16 aurar.
Hinn 26. september (laugardag) kom
skip til Tyborön með 6000 pd. af ýsu og
eftir því, semskipstj. skýrirfrá, seldi hann
afla þann fyrir að eins rúma 3 aura
hvert pund. Vikuna á undan seldi hann
8000 pund af ýsu fyrir 900 kr.
(Dansk Fiskerit. 8. oktbr. 1931)