Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 6

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 6
112 Æ G I R undirbúning Sjómannadagsins hafa stctt- arfélög sjómamia við Faxaflóa kosið full- trúaráð, sem er skipað tveimur fulltrúum frá hverju félagi og einum til vara, og eru þeir kosnir til eins árs í senn. Stéttarfélög sjómanna annarsstaðar af landinu geta einnig orðið meðlimir. Hvernig' svo sem tekst að gera Sjó- mannadaginn úr garði í hvert sinn, þá leikur enginn vafi á því, að honum verður veitt athygli af þorra manna. Þeir menn, sem standa að undirbúningi dagsins, liafa að ýmsu leyti lakari aðstöðu og naumari tíma til þeirra hluta en aðrar stéttir og á það verður einnig að líta. Sjómennirnir eru hermenn þjóðarinn- ar, þeir standa þar sem liættan er mest og vinna erfiðustu framleiðslustörfin. Það er því mikil nauðsyn á því, að sjómanna- stéttin fylki sér fasl saman til haráttu fyrir hagsmuna- og menningarmálum sínum. Það er einnig mjög mikilsvert fyrir sjó- mannastéttina að fólkið í landi, hvort sem það er heldur verkamennirnir á eyrinni eða verkamennirnir i húsinu við Austur- völl, fái sem Ijósasta hugmynd um störf sjómanna á hafinu og' aðhúð þeirra þar, því að það eitt getur orðið til þess að veita réttan skilning á starfi þeirra manna, sem jafnan standa í fremstu víglínu, og ættu því að njóta meiri samhygðar og velvilja alþjóðar en allar aðrar stéttir. Sjómennirnir eru fjarri heimilum sín- um, konu og hörnum mikinn hluta ársins, lifa við lakari aðhúð en flestar aðrar slétt- ir, en færa samt stærsta fenginn i þjóðar- húið, og hversvegna skyldi svo þessi stétt ekki njóta neinna viðurkenninga eða lilunninda um fram aðrar stéttir, sem geta orpað sér við arinn heimilisins allt árið? Máske skortir hér meira á glögga kynn- ing'u af störfum sjómannastéttarinnar en liugkvæmni og velvilja til þess að láta henni i té frekari viðurkenningu en gert liefir verið fram til þessa. En þá kynningu ætti að vera auðvelt að auka og' ætti starf Sjómannadagsins ekki sizt að hníga i þá átt. Það er von og ósk allra, sem unna sjó- mahnastéttinni góðs gengis, að henni tak- ist með Sjómannadeg'inum að vinna ötul- lega að því takmarki, sem við liann er tengt. Bergmálsdýptarmælir. Þar sem afkoma íslendinga Jjyggist að lang mestu leyti á sjávarútvegi, þá mætti ætla að árlega væri varið álitlegri fjár- hæð til rannsókna á hafinu i kringum ísland og nytjafiskum þess. Þessu hefir þó elvki verið þannig varið fram til þessa og hefir eflaust margt uin ráðið. Að vísu hefir varðskipið „Þór“ verið gert út í rann- sóknarleiðangra þrjú síðastliðin ár, og má segja að það sé vísir í rétta átt. En tími sá, sem skipið liefir verið við rannsóknir á ári liverju, hefir verið all takmarkaður, þótt það hafi ekki komið jafn mikið að sök og liitt, livað fátæklegt það er af ýmiskonar áhöldum, sem nauðsvnleg eru við slikar rannsóknir. Ef liorin er saman útbúnaður „Þórs“ og „Johans Hjorts“, en það er rann- sóknarskip Norðmanna, þá er þar ólíku saman að jafna, enda standa Norðmenn mjög framarlega á þessu sviði og liafa var- i'ð til liafrannsókna, fiskirannsókna og fiskileita mjög miklu fé. Fram á síðustu ár liefir yfirleitt ekki orðið vart við sterkar hneigðir lijá íslend- ingum í þá ált, að notfæra sér við veiðar þau hjálpartæki, sem orðið hafa til fvrir reynslu og visindaleg'a tækni, og aðrar fiskveiðaþjóðir liafa notað með góðum árangri. íslendingar hafa verið nokkuð fastheldnir á það sem gamalt er og að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.