Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 14

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 14
120 Æ G I R Heildarafli Nýfundnalands hefir verið sem hér segir, undanfarin þrjú ár: 1937 ........ 50 þús. smál. 1936 ........ 53 — — 1935 ........ 61 — — Yeiðin á „hönkunum“ varð 13 þús. smál. og er það hcr um hil 2.500 smál. nieira en 1936. Alls stunduðu veiðar á „bönkun- um“ 2 togarar, 63 skip stærri en 40 smál. og 166 minni. Agæt veiði var á „hönkun- um“ alla vertíðina, en nokkur hörgull var á heitu, og liættu þess vegna nokkrir hátar fyrr, en þeir liefðu annars þurft að gera. Þátttakan í veiðunum við Lahrador varð nokkru meiri en fyrra ár, eða 326 skip og er það 80 fleiri en árið áður. Heild- araflinn við Lahrador varð 19 þús. smál. og er það 4 þús. smál. meira en 1936. Vegna þcss hvað veður var heitt og raka- samt var fiskurinn ekki eins góð vara og annars hefði orðið, og auk þess var talið, að hann hefði ekki verið saltaður sem skyldi. Sparneytni fiskimannanna á sallið orsakaðist af því, livað dýrt það var, en sennilega hefir þeim fundizt sú ráðstöfun koma sér í koll áður en lauk. Heimaveiðin var mjög lítil, eða miklu minni en liún hefir verið mörg undanfarin ár. Heildaraflinn varð alls um 18 ])ús. smál. og er það helmingurinn af ])vi, sem hann hefir verið í meðal ári. Siðastliðið fjárhagsár, en það er talið frá 1. júlí—30. júní, voru fluttar út frá Nýfundnalandi 48 þús. smál. af fiski og nam verðmæti þess rúmar 22 milljónir kr. Frá 1. júli—31. des. 1937 var alls flutt út af verkuðum saltfiski rúmar 28 þús. smál. Fjárhagsárið 1936—37 voru seldar til Brasilíu 11.650 smál. af fiski og nam verð- mæti þess um 5.260 þús. kr. Fyrri hluta ársins 1937 var verðið þar frekar golt, en dalaði nokkuð síðari hluta ársins, vegna þess að þá voru komin til framkvæmda í Brasilíu lög um 3% skatl á gjaldeyri, sem fluttur er til útlanda og auk þess 2% söluskattur. Þessi skattalöggjöf liafði þau áhrif, að neytendurnir urðu að kaupa fisk- inn hærra verði en áður, og olli það minni eftirspurn en verið hafði fyrri hluta árs- ins. Auk þessa, sem hér hefir verið gelið, var nokkur hreyting á hinu stjórnmála- lega ástandi í Brasilíu, sem orsakaði það, að fisldkaupmennirnir voru varkárari í öll- um ráðslöfunum viðvíkjandi fiskkaupum. Öll fisksala frá Nýfundnalandi til Portu- gal liefir verið undir el'tirliti portugölsku ríkisstjórnarinnar og hefir það orðið lil ])ess að torvelda sölu á Nýfundnalands- fiski á þann markað. Alls voru seldar á árinu til Porlugal 4.835 smál. af verkuð- um saltfiski. Útlit er fvrir að fisksalan frá Nýfundnalandi til Portugal eigi enn eftir að minnka. Árið 1936 var Ítalíumarkaðurinn alveg lokaður fvrir fisk frá Nýfundnalandi, en samkvæmt verzlunarsamningi milli Eng- lands og ítalíu, sem gekk í gildi 16. nóv. 1936, er ákveðið að ítalir kaupi árlega visst magn af Nýfundnalandsfiski. Síðaslliðið ár voru scldar ])angað alls 2500 smál. og fer greiðslan fram gegnum „clearing“. Til Porto Rico voru seldar árið 1937 11 þús. smál. og voru 7.650 smál. af því Labrador-fiskur. Salan til Porto Rico hefir minnkað um 1200 smál. frá fyrra ári. Litil fisksala var lil Grikklands á fjár- hagsárinu 1936—’37, eða aðeins 1020 smál. En seinni helming ársins 1937 glæddist salan nokkuð og á tímahilinu okt.—des. voru seldar lil Grikklands 2 þús. smál. af Lahrador-fiski. Til Spánar voru seldar 7700 smál. af fiski 1936—’37, en aðeins 700 smál. seinni helming fyrra árs. Heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða nam á árinu 1936—’37 um 31 milljón kr„ og' er það næstum því 2 milljónum kr. minna en næsta ár á undan.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.