Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 17

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 17
Æ G I R 123 Keflavík og Sandgerði. í Keflavík er vertíð talin laklega i meðallagi. Margir bátar héldu áfram veiðum eftir lok, en um þann 20. þ. m. voru þó flestir liættir, vegna aflaleysis. Vertíðin í Sandgerði er sögð vera um það bil í meðallagi. Flestir bátarnir hættu um lokin. Seinustu dagana, sem þeir réru, öfluðu þeir 5—10 skippund. Grindavík. Vertiðin þar reyndist mjög ógæftasöm og afli frenmr tregur, en þó ríflegri en næstu vertíð á undan. Alls aflaðist þar 1.225 smál. miðað við fullsaltaðan fisk. Úr þessum fiski fengust 1.050 tunnur af hrognum til söltunar og 245.345 lítrar af lifur, og fékkst úr því 125 smál. af meðala- lýsi. Lifrarfengurinn í ár er 01.560 lítrum meiri en 1937, en jafnmargir bátar liafa gengið til fiskjar bæði árin. Vestmannaeyjar. Þar öfluðust alls á vertíðinni rúmlega 30 þús. skippund. Aflabæstur var vélbáturinn „Veiga“ með 000 smál. Lifrarsamlag Vestmannaeyja tók alls á móti 1.090 smál. lifrar, og er það mesta lifrarmagn, sem hefir verið brætt í Eyjum á einni vertið. Vestmannaeyjabátar liættu flestir netaveið- um í byrjun mánaðarins og byrjuðu dragnóta- veiðar. Sæmilegur afli hefir verið þar í drag- uót, og er hann sendur frystur til sölu á Eng- landsmarkað. Fjórir bátar héldu áfram neta- veiðum fram eftir mánuðinum og öfluðu allvel. Þann 3. maí sökk vélbáturinn „Svanúr“ frá Vestmannaeyjum, undir Einidrang. Kom snögg- lega að honum leki og var ekki hægt að halda honum á floti. Vélbáturinn „Maggi“ bjargaði áhöfninni. Stýrimannaskólinn. Þar vorn í vetur 60 nemendur og luku 17 af þeim hinu meira fiskimannaprófi °g voru það þessir: Björgvin Björnsson (112 st.). Gunnar B. Valgeirsson (119% st.). Helgi Guðmundsson (101% st.). Herbert Þórðarson (138 st.). Hilmar S. Björnsson (135 st.). Hjálmar Guðmundsson (107 st.). Illugi Guðmundsson (119% st.). Jóakim Pétursson (115% st.). Jón G. Sigurgeirsson (104 st.). Kristján Gunnarsson (151% st.). Olafur Magnússon (110 st.). Ólafur Stefánsson (81% st.). Pétur A. P. Maack (123% st.). Sig. Friðriksson (130% st.). Sig. Þorleifsson (154 st.). Skafti Jónsson (107% st.). Tryggvi Sigurðsson (110% st.). Norðmenn hafa enga íljótandi síldarverksmiðju hér í sumar. Norskir síldarútgerðarinenn Jiykjast rang’induin lieittir hér við land. Félag útgerðarmanna i Álasundi og fé- lagsdeild norska sjómannasambandsins þar í Jiorginni bafa sent verzlunarmála- ráðaneytinu sameiginlegt álitsskjal, þar sem þess er krafist, að með þvi að ekki verði unnt að bafa fljólandi síldarverk- smiðjur á veiðisvæðunum við ísland í sumar, verði norska rikið látið verja til þess allmikilli fjárbæð að styrkja flutn- inga á bræðslusíld frá tslandi lil Noregs. I þessu skjali er því lialdið fram, að norska síldarverksmiðjan Ægir á íslandi bafi i fyrra keypl minni síld af Norð- mönnum en þeim Iiar samkvæmt við- skiptasamningnum og borgað tslending- um bærra verð fyrir síldina en Norð- mönnum. Þá er einnig kvarlað yfir því, að norsk veiðiskip hafi orðið að þoka frá Inyggj- um þessarar verksmiðju fyrir íslenzkum togurum, og er þetta fært fram sem rök fyrir því, að norska rikið verði að hlutast til um að skapa síldveiðimönrium sínum við tsland betri aðstöðu en þeir liafa not- ið liingað til.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.