Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 10

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 10
116 Æ G I R teki'ð 148 farþega, 128 á fyrsta farrými en 20 á öðru farrými. Það átti þó ekki fyrir „Great Western“ að liggja að verða fyrsta gufuskipið, sem færi milli Englands og New York, þvi að Brunel hafði tekizt að vekja svo mikinn áliuga fyrir þessu samgöngumáli, að tvö önnur félög liöfðu verið stofnuð í sama augnamiði og gufskipafélagið Great Western, og voru þau um þessar mundir að láta smíða sitt gufuskipið livort. Ann- að þeirra hét „Britisli Queen“ og var það 245 f. langt og 40 f. breitt. Til þessa skips var vandað mjög mikið og ekkert til spar- að, að farþegarnir gætu liaft sem mest þægindi. Þar var lieitt og kalt steypubað, reykingarsalur, veg'na ameríkönsku far- þeganna, eins og það var orðað, og ýmis- legt fleira nýstárlegt var þar. „British Queen“ kostaði 120 þús. sterlingspund. Það liafði 85 manna áliöfn og gal tekið 280 farþega. Hitt skipið hét „Liverpool“ og var það 223 f. á lengd og 30 f. á breidd. Það liafði tvo reykliáfa, en það þótti ný- lunda í þann tíma, og var útbúið sem frek- ast mátti verða eftir þeirra tíðar tízku. Mikið kapphlaup var milli þessara fé- laga um það, hvert þeirra vrði fvrst til þess að senda skip þessa ónumdu gufu- skipaleið. Allt benti til þess að „British Queen“ yrði fyrr ferðbúin en „Great Western“, en svo varð þó ekki, því smiði vélanna seinkaði meira en gert iiafði verið ráð fyrir. Þegar eigendur „British Queen“ sáu, að þeir mundu tapa í leiknum, tóku þeir á leigu gufuskipið „Sirus“. Skip þetta var smíðað 1837 og átti það að liafa ferðir milli írlands og Englands. Það var 178 f. langt og 26 feta breitt. Snemma árs 1838 birtust svo auglýs- ingar í blöðunum, þess efnis, að „Sirus“ færi af stað frá London á leið til New York, þann 28. marz, en burtför skipsins frá New York vrði 1. maí. Sama dag og ákveðið liafði verið lagði „Sirus“ úr liöfn. Þúsundir manna voru viðstaddir imottför þess. Skipið lireppti storm og stórsjó strax og það var komið á haf út. Ferðagleði farþeganna breyttist í óhugnan og' kvíða, þegar liið hlaðna „At- landsliafsgufuskip“ tók á sig stórsjóina. En þrátt fvrir allt virtist það fara ágæt- lega í sjó. Richard Roberts reyndist prýði- legur skipstjóri og lét ekki mögl farþeg- anna hafa nein áhrif á sig. Um tíma voru farþegarnir svo skelkaðir að þeir kröfð-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.