Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 16

Ægir - 01.05.1938, Blaðsíða 16
122 Æ G I R verið liefir. Munu þeir ætla að liaga mati sínu og verkun á „Íslandssíld" nieira með það fyrir augum, en gert hefir verið áður. Hvort þessi viðteitni Norðmanna getur orsakað það, að salt- síldarsala íslendinga til Póllands minnki að þessu sinni, skal látið ósagt. Harðfiskssata Norðmanna. Norðmenn seldu til Ítalíu (upp í vöruskipta- sainninginn) í marzlok það siðasta, sem þeir áttu eftir af fyrsta flokks harðfiski, og liefir siðan verið mjög kyrrlátt á harðfisksmarkaðn- um. Fram til síðustu mánaðarmóta höfðu Afriku- kaupendur ekki sýnt nokkurn áhuga til harð- fiskskaupa, og i Mið-Evrópulöndunum liefir neyzlan orðið minni en vonast var eftir, vegna þess hve þar voraði snennna. Heyrst liefir að Afríkukaupendur myndu gera pantanir í harð- fisk, ef verðið væri lækkað niður i það sama og það var fyrra ár, en norskir útflytjendur virð- ast þó ekki enn sem komið er vera fúsir á að lækka verðið til þess að losna 'við fiskinn. Norðmenn halda því fram, að þeir geti ekki undir nokkrum kringumstæðum selt nýja fisk- inn sama verði og fyrra árs harðfisk, vegna þess að lágmarksverðið fyrir fiskinn upp úr sjó i Lofóten og' Finnmörk var hækkað úr 11 og 12 aurum upp í 12 og 13 aura pr. kg. á þessari vertíð. Yerkunarlaunin hafa einnig hækkað iim ca. 12% en það er nokkuð mismunandi eftir stöðimi. Birgðir af fyrra árs framleiðslu eru nú liarla litlar i landinu, og vænta Norðmenn þess, að þær verði allar seldar, þegar nýi fiskurinn er tilbúinn til útflutnings. I>ó að stórar harðfiskssendingar færu til Ítalíu í hyrjun ársins, þá er lieildarútflutning- ur Norðmanna af harðfiski iiingað til (27. apríl) mun minni í ár, en í fyrra. Þann 9. april var út- flutningurinn orðinn þannig, miðað við smál., tölurnar fyrir 1937 eru teknar með til sam- anburðar. Ruiulfiskui' Ufsi Ýsa Harðfiskur alls 1938 .... 3.848 1.287 510 5.904 1937 .... 0.861 2.572 408 10.242 I heildartölunni eru innifaldar nokkrar teg- undir af harðfiski, sem ekki eru tilgreindar liér. Yerðið hefir á öllum tegundum verið heldur hærra en í fyrra. Talið er, að það muni eiga að liækka enn meira. Fréttir úr verstöðvunum. Frá Vestfjörðum. 27. maí. í byrjun mánaðarins var reytingsafli á Pat- reksfirði. Aðallega var róið út í fjarðarmynnið. Sæmilegur afli hefir verið allan þennan mánuð i verstöðvunum við ísafjarðardjúp, einkum Hnífsdal og Bolungarvík. ísfirzku útilegubát- arnir eru nú bættir veiðum og búast á síldveið- ar. Sagt er að togarinn Hávarður ísfirðingur eigi að stunda karfaveiðar í sumar og leggja upp á Sólbakka, en verksmiðjuna þar á að nota til karfavinnslu í sumar. Patreksfjarðartogar- arnir liafa stundað karfaveiðar síðan þeir tiættu saltfiskveiðum og aflað lieldur tílið. Verstöðvarnar á Snæfellsnesi. Róið hefir verið allan þennan niánuð bæði úr Ólafsvík og af Sandi, en afli verið heldur rvr, Síðan dragnótabátarnir byrjuðu veiðar þar, hefi rekkert aflazt af þorski á linu, og eru því allir bátar að hætta þeim veiðúin. Tveir mótor- jiilbátar stunda dragnótaveiðar úr Ólafsvik. Akranes. Þar hættu flestir bátar róðrum um síðustu mánaðarmót, enda aflaðist þar þá sama og ekk- ert. Af verstöðvunum við Faxaflóa er hlutfalls- lega langminnstur afli á Akranesi, og er hann langt fyrir neðan meðallag. Reykjavík. Flestir togararnir eru nú liættir þorskveið- um og er veiðitimi margra þeirra lengri en í fyrra. Fyrstu vikuna af mai öfluðu togararnir dável á Eldeyjarbankanum og i Jökuldjúpinu og var það mestmegnis ungþorskur, eða nvir árgangar. Þrír togarar eru nú i þann veginn að fara á ísfisksveiðar, en aðrir eru að útbúa sig á sild- og karfaveiðar. Vélbátarnir hættu flestir veiðum i byrjun mánaðarins, og eru margir þeirra komnir á dragnótaveiðar, en liinir bíða þangað lil sild- arvertíð hefst. Fyrstu dagana eftir að land- helgin var opnuð fyrir dragnót, var sæmileg veiði vestur á Skarfsvik og Ólafsvik, en síðustu dagana hefir verið aflatregða, hvaðan sem fréttst liefir. Trilluhátar, sem stunda veiðar héðan, hafa aflað frekar lítið, þennan mánuð, mun minna en í apríl. Hrognkelsaveiði hefir verið ágæt.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.