Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1940, Side 15

Ægir - 01.11.1940, Side 15
Æ G I R 241 luíðan af sjónarsviðinu, þá mun álirifa lians lengi gæta meðal fiskimannanna. enda eru gjafirnar miklar, sem hann iiefir gefið þeim. Hinar fjölhæfu gáfur lians, iðjusemi og einlægur vilji til þess að verða þeim að sem mestu liði, gerði honum kleift, þótt fjárframlögin til starfs hans væru jafnan við nögl skorin, að leggja svo traustan grundvöll fyrir fram- halds fiskirannsóknum hér við land, að ekki mun bila, þótt ofan á verði byggt. Það var mikið lán fyrir þjóðina, að Bjarni Sæmundsson skyldi uppi vera á þeim tima, sem stórstígastur hefir verið á sviði fiskveiðanna, þegar gömlu skipin eg eldri veiðiaðferðir voru að víkja úr vegi fyrir vélaaflinu og tækni Iiins nýja thna með ærslum þeim og víxlsporum, sem jafnan fvlgja svo stórtækum bylt- ingum á sviði atvinnumálanna. Bjarni var einmitt sá maður, sem bæði binn gamli og nýi tími gat borið fullt traust til, því að þótt hann fylgdi jafnan fram- þróun þess nýja tíma og berðist á móti hjátrú og hindurvitnum þeirra manna, sem sáu ekki annað en örfok og evðilegg- higu i kjölfari hinna nýju veiðarfæra, þá var hann í eðli sinu íhaldssamur og svo fast tengdur hinum ehlri veiðiaðferð- Uni, að enginn gat látið sér til hugar koma, að hann verndaði eklci rétt þeirra, svo sem framast mátti verða, enda var skapgerð dr. Bjarna frekar þeirra, er hera klæði á vopnin en liinna, sem ekki sjá nema eina hlið málanna og stefna því heint fram, án þess að taka tillit til þeirra verðmæta, sem þannig fara forgörðum. Bjarni Sæmundsson hefir tileinkað is- lenzkum fiskimönnum eitt af merkustu verkum sínum, „Fiskarnir“, og er það stórmikil og vegleg' gjöf. En eftir sextán Hra náið samstarf við liann á sviði fisk- veiðimálanna, get ég um það borið, að það var ekki það eina af verkum hans, sem þeim var tileinkað, heldur var öll ævi hans og allt hans mikla starf tileink- að Þeim- Kr. Bergsson. Dr. Bjarni Sæmundsson á sjónum við rannsóknir. Ritstjóri Ægis hefir beðið mig að rita nokkur orð um dr. Bjarna Sæmundsson og starf lians þann tínia, sem hann var með mér á botnvörpuskipinu „Skalla- grímur“,- Mér er það Ijúft og ánægjulegt að minnast ])ess tímabils, sem liann var með mér, hæði á botnvörpuveiðum og síldar- veiðum. Ég dáðist og undraðist, livað dr. Bjarni, þá kominn á efri ár, sýndi mikið þrek og' áræði við starf sitt. Oft slóð liann tínnnn saman niðri á þilfari skipsins i miklum velting og sjógangi og athugaði allt smátt og stórt, sem kom upp í vörpunni, einnig inn i maga fjölda fiska, og grandskoðaði allar þær mörgu tegundir, er þar voru að finna, oft við svo vond skilvrði, að furðu sætti að Iiann skyldi geta hamið sig við það, af því ég vissi lil, að hann gekk með vonda gikt í fótum, sem hann sagði mér að bagaði sig mikið. Einnig minnist ég með aðdáun og' þakklæti þeirra kvöldstunda, eftir af- lokið dagsverk, er við sátum og röbbuð- um um ýmsa viðburði, sem skeð höfðu annaðhvort þann dag, eða eitthvað, sem hann hafði upplifað fyrrum. Allt ])etta útskýrði hann svo vel og greinilega, einkum ])að sem viðkom fiski og fiskveiðum, að það varð mér bæði gagnlegur og skemmtilegur skóli. Við ræddum um fiskigöngur að afstöðnum hrygningatíma, og livar fiskur væri, og hvernig liann hagaði sér á öðrum árs- tíðum o. s. frv. Alll þetta rökfærði hann

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.