Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1941, Blaðsíða 17

Ægir - 01.09.1941, Blaðsíða 17
’ Æ G I R 231 Eiríkur Einarsson, hafnsögumaður á ísafirði. Hinn 27. ágúst síðastl. lczt í Lands- spítalanum Eiríkur Einarsson, hafnsögu- niaður frá ísafirði. — Og með því að hann var ekki einungis merkur horgari hæjarfélags síns, heldur lók liann og um Jangt slceið mikinn þátt í málum Fislci- fclagsins, stýrði siglingafræðinámsskeið- nm, og átti þannig mikinn og góðan Idul að uppfræðslu sjómanna liér um slóðir, vil ég hiðja Ægi að geyma svij) Iians, ásamt nokkrum minningarorðum. Eirilviir var fæddur að Bólstað í Stein- grímsfirði 20. okt. 1878, sonur Einars Einarssonar hónda þar og Soffíu Torfa- dóttur (alþm. á Kleifiun Einarssonar). Hann tólc að stunda sjó þegar upp úr fermingu, fvrst nvrðra og síðan við ísa- fjarðardjúp. — Gerðist liann formaður á vélbát, þegar er þeir komu til sögunn- ar, og var ýmist formaður eða vélamað- ur á l)átum frá ísafirði. Fluttist hann lil Isafjarðar skömmu eftir aldamótin, og átti þar heimili siðan. — Árið 1917 tók hann próf við Stýrimannaskólann og var j)á um liríð skipstjóri á nokkrum stærri vélbátum frá Isafirði. Laust eftir 1920 varð bann umsjónar- maður bafnarhryggjunnar, og 10 síðustu árin hafnsögumaður ísafjarðar. — Með- an Eiríkur stundaði sjó, var liann ekki allasæll meira en i meðallagi, en liann fékk snennna orð fyrir að vera ágætis sjómaður, og dugði jafnan hezt, er mest reyndi á. Þegar námsskeið í siglingafræði voru tekin upp hér á Isafirði, þólti Eiríkur sjálfsagður til að veita þeim forstöðu. Hafði hann síðan á hendi siglingafræði- kennslu á námsskeiðum þessum, að hinu síðasta undanteknu. Auk þess veitti hann Eirikur Einarsson. mörgum tilsögn í sjómannafræði. Hann var áhugasamur um að nemendurnir hefðu sem hezl gagn af kennslunni, og var nærgætinn við þá, er lítt voru undirhúnir. Hann var ágætur reiknings- maður. Eirikur tók jafnan manna mestan þátt i félagsmálum bæjarins. Þannig var hann 12 ár i hæjarstjórn og lengi i niðurjöfn- unarnefnd, og sinnti þeim störfum af á- huga og festu. — Hann var einn af stofn- endum Samvinnufélags ísfirðinga, og formaður félagsins mörg siðustu árin. —• Var liann umsjónarmaður við smíði háta félagsins. Hann var jafnan mikið riðinn við Sjómannafélag ísfirðinga, ýmist sem formaður eða 'meðstjórnandi, og oftast fulltrúi þess félags út á við. Formaður fiskideildar Isafjarðar liafði hann verið í mörg ár, er hann lézt. Mætti hann á flestum fjórðungsþingum, sem hér hafa verið haldin, og álti góðan hlut að ýins- uni málum, sem þaðan hafa verið al'- greidd. Eins starfaði hann mikið að hind- indismálum, og var eindreginn templar. Lengi hafði hann á hendi skipaskoð- un hcr i umdæminu og leiðréttingar áttavita. Eiríkur kvæntist 1908 eftirlifandi konu sinni Þorhjörgu Guðmundsdóttur frá Eyri í Ingólfsfirði. Eignuðust þau sex

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.