Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.1946, Side 13

Ægir - 01.08.1946, Side 13
Æ G I R 203 'nikilsvert sem fóður fyrir l)úpening. Sc liænsnum gefin fóðurblanda, þar sem einn hluti er fiskmjöl en níu hlutar korn, eykst vöxtur þeirra og varp vegna köfnunar- og steinefnainnihalds fiskmjölsins. Árlega er framleitt um 1400 milljónir punda af olíum úr sjódýrum, svo sem fiski, lival og sel. Þessar olíur eru á margvíslegan hátt notaðar í iðnaðinum. Hægt er að blanda þeim saman við margar aðrar olíutegundir °g fituefni og nota þær í sápu, málningu, hnolíum og við leðurgerð. Sumar olíuteg- lindir, unnar úr sjódýrum, eru sérstaklega notaðar í smurningsolíur og einnig fer rnikill hluti í smjörliki. Þær olíutegundir, Sfeni unnar eru úr sjódýrum og innihalda á og D vítamín eru að nokkru leyli not- aðar til skepnufóðurs. Mennirnir fá mest af A og D vítamíni úr I isklifrarlýsi. Það hefur einnig hin síðari ai' verið notað til skepnufóðurs. Þorskalýsi hefur í aldaraðir verið notað við matreiðslu. Lifrarlýsi úr öðrum fiski hefur ekki verið notað fyrr en síðustu áratugina. Áhrif annarar heimsstyrjaldarinnar. Vegna beinna áhrifa styrjaldarinnar harst minna af fiski á markað en áður. Til þess að ráða bót á því urðu öll fiskveiði- ‘hnd sameinuðu þjóðanna, er ekki voru í hernaði, að láta af hendi svo mikið af fiski °g öðrum sjávarafurðum sem kostur var. hrátt fyrir margvíslega örðugleika juku þessar þjóðir stöðugt framleiðslu sina af kjávarafurðum. Árið 1943 var fiskfram- leiðsla hlutlausra þjóða talin nema 1000 niilljónum punda, öxulríkjanna og þeirra landa, er þau höfðu eftirlit með eða höfðu hertekið, 15 000 niillj. punda og sameinnðu þjóðanna 12 000 millj. punda. Alls var þetta niagn samanlagt 9000 milljónum punda nunna en lieimsframleiðslan var fyrir Myrjöldina. Lftir að Vestur-Evrópurikin urðu að lúta óxulveldunum, gátu þau ekki lengur flutt lIt neitt af fiski. Það hafði sínar afleiðingar 1 Stóra-Bretlandi og Ameríku. Vegna hern- •'ðaraðgerða, fólksfæðar og notkunar mikils hluta fiskiflotans til hernaðar, varð Stóra- Bretland og ýmiss önnur lönd að fá fisk- meti frá sameinuðum þjóðum eða hlutlaus- um. Kanada, íslandi, Nýfundnalandi og Bandaríkjunum lánaðist að bæta að mestu úr þeim fiskskorti, sem varð vegna fvrr- nefnds ástands. Fyrir styrjöldina söltuðu íslendingar megnið af þorskfiskafla sínum. Eftir að styrjöldin hófst og Bretar urðu að hætta liskveiðum í norðaustur Atlantshafi fékk Stófa-Bretland megnið af sínum ferskfiski frá ísledingum. Megnið af fiskinum var flutt út ísað, en jafnframt jókst stöðugt magn það, sem flutt var út hraðfrvst. ís- land er í raun réttri orðið einn stærsti hraðfrystsfisks útflytjandi heimsins og sem slendur er aðeins sára lítill liluti aflans saltaður. Fyrstu ár slvrjaldarinnar var fiskfram- leiðsla Nýfundlendinga ekki sem skyldi vegna fólksfæðar. Þeir héldu þó áfram að flytja út mikið af frystum og söltuðum fiski. Ivanada og Bandaríkin fengu einnig að kenna á fólkseklunni og einnig skorti þau báta og' ýmsar útgerðarnauðsynjar cn þrátt fyrir það jókst fiskútflutningur þess- ara landa, en það varð á kostnað þess fólks, er notaði niðursoðið fiskmeti. í báðuin ])ess- um löndum var tekinn i notkun útbúnaður, sem sparaði vinnuafl og jafnframt jók einnig hið beinlausa hráefni í hlutfalli við úrganginn. Vestur-Indíum reyndist erfitt að fá nægi- legt af fiski, einkum söltuðum fiski. Skort- ur á flutningaskipum og hin feikilega fisk- neyzla hlutlausu landanna, Portugals og Spánar, áttu sinn ])átt í því. Þeim tókst þó að fá nokkurn hluta þess fiskmagns, er þær höfðu áður notað með því að kaupa aðrar fisktegundir en áður og snúa sér til nýrra viðskiptalanda. Meðan á styrjöldinni stóð voru gerðar umbætur á verkun ýmiss konar salt- og þurrfisks, einkum að því er snerti gæði vörunnar og bragð. Flest þau lönd, sem framleiða saltfisk, hafa komið á hjá sér skipulögðu eftirliti með framleiðslunni og

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.