Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1946, Page 16

Ægir - 01.08.1946, Page 16
206 Æ G I R jofn harðan sein stýrimaður á botnvörp- unginn Frey. Árið eftir tók hann við stjórn á enskum togara, þá aðeins tuttugu og tveggja ára gamall. Árið 1914 lauk hann prófi við Navigation School í Grímsby og það sama ár tók hann við stjórn á togaranum Skallagrími hinum eldri. Eftir það var hann skipstjóri hjá fiskveiðahlutafélaginu Kveld- úlfi í tvo ára tugi. Er hann hvarf frá Kveld- úlfi, gerðist hann skipstjóri á „Reykjaborg“, stærsta togaranum, sem íslendingar hafa eignast. Síðast stjórnaði hann togaranum íslending. — Litt er saga „Guðmundar á Skalla“ sögð með þessari upptalningu, þótt nokkuð gefi hún til kynna hve bráðger og alfylginn hann hefur verið. Nafn Guðmundar Jónssonar á Skalla- grími var um langt skeið á vörum flestra landsmanna. Sjómennirnir þekktu af eigin reynd og orðspori hve ótvíræðir Skipstjórn- arhæfileikar lians voru, en vítt um byggðir landsins gengu sögur um aflamanninn, er dró því líkan feng á land, að til ólíkinda mátti teljast. Hann var slíkur veiðimaður, að glóð sú, er tendrar ævintýr, varp ljóma á hann. En jafnframt því, sem Guðmundi \ar sú list lagin að ráða vind og báru og greina dulspeki veiðimannsins, kunni hann þau tök, er bezt sæma mannaforráðum. Því vildu ja'fnán fleiri með honum vera en þess áttu kost. Slíkir menn kenna jafnan þeirrar ástsældar, sem á rót sína i fölska- lausu trúnaðartrausti samfylgdarinnar. Samfara því sem Guðmundur var gæddur ýmsum kostum til forustu, ól hann sterka þrá til umsvifa, en aldrei mun hann hafa fengið svalað henni svo sem hann vildi og iiafði hann þó fleiri en eitt járn í eldi í senn. Þótt hugur Guðmundar hneigðist fyrst og fremst að sjónum, leit bann þó jafnframt hýru auga til íslenzkrar moldar og þeirra aflgjafa, er gátu gert hana að vitaðsgjafa. Árið 1914 keypti Guðmundur i félagi við annan mann jörðina Suður-Reyki í Mos- fellssveit. Þar reistu þeir mágarnir, Bjarni Ásgeirsson og hann fyrsta íslenzka gróður- húsið 1923. f rúm 20 ár átti Guðmundur heimili á Reykjum og hafði sjálfur búrekst- ur þar í 16 eða 17 ár. Jafnframt eignáðist hann jarðirnar Víðjries og Þerney og hafði búskap á þeim býlum báðurii. — Bjarni, mágur Guðmundar, liefur sagt, að svo hafi verið sem moldin og miðin toguðust á um hann og þar liafi ýmsum veitt betur. Vafa- laust er bér í'étt mælt. Þegar risið var sem lægst á íslenzkri tog- araútgerð og flestum virtist horfa mjög erfiðlega fyrir þessum atvinnuvegi, réðist Guðniundur í ]>að ásamt nokkrum öðrum mönnum að kaupa hingað til lands stærri togara en landsmenn höfðu áður átt, og búa hann betur að tækjum til vinnslu á hráefn- inu en hér hafði áður þekkzt. Þessar að- gerðir hans sýna vel stórhug hans og trú á þessum atvinnuvégi. Að hans dómi dugði ekki að leggja árar í bát, þólt móti blési, h.eldur berjast til þrautar með stærri skip- um, búnum nýtízku vélum til hráefna- vinnslu. Eftir að Guðmundur var orðinn skipstjóri á sínu cigin skipi urðu ýmsir örðugleikar á vegi lians i sambandi við út- gerðina, en gegn þeim gekk hann ótrauður. Er markaður fyrir ísfisk í Bretlandi opn- aðist til l'ulls, varð „Reykjaborg“ verðmæt- asta skip ísl. fiskiflotans. En hörmuleg af- drif biðu þess skips, og eru þau öllum í lersku minni. Þótl atburður þessi legðist þungt á Guðmund, brast hann elcki kjark til þess að leggja enn í útgerð og fara aftur á s'jóinn og að þessu sinni á minnsta tog- ara flotans. Hlut sinn í þessu skipi seldi liann eftir skamrna hríð og hvarf þá í land. Síðastliðið sumar lióí' hann í félagi við aðra undirbúning að stofnun hvalveiði- stöðvar í námunda við Reykjavík og kaup á hvalveiðaskipi. Hann sigldi þá utan íil þess að kanna ýmislegt í sambandi við það mál. En áður en varði þraut dagur hans, dagur mikilla starfa og farsælla. Guðmundur var kvæntur Ingibjörgu Pét- ursdóttur, af Svefneyjaætt í Breiðafirði, konu mikilla sanda og sæva. Fór saman i fasi þeirra hjóna glæsibragur og fyrir- mennska, mildi og hlýlyndi. Syni eiga þau fimm og tvær fósturdætur,

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.