Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1947, Síða 3

Ægir - 01.03.1947, Síða 3
Æ G I R MANAÐARRIT FISKIFELAGS ISLANDS Hver ber ábyrgá á, að ekki er hafizt handa? Eins og kunnugt er hatt Alþingi ríkis- sJóði þann bagga rétt fyrir áramótin, að taka ábyrgð á svo að segja allri litflutn- mgsvöru bátaútvegsins á vertiðinni. Deildar v°ru meiningar manna þá urn, hvort með því væri farið inn á \i6unanlega braut til l)ess að tryggja rekstur bátaútvegsins á yfirstandandi vertíð. Ýmislegt virðist ðenda til þess, að meiningarmunur þessi eigi eftir að aukast og betur eigi eftir að ''Onia í Ijós, að hér var í fljótfærni valinn kostur, að minnsta kosti hvað við kemur saltfískábyrgðinni, sem ekki mun gefast ;,ð sama skapi og ýinsir munu liafa ætlað í öndverðu. t»að, sem Alþingi afræður að gera á Rokkrum eyktum, er í stuttu máli þetta: Eiskverðið skal hækka um 30% og rikis- sjóður skal taka ábyrgð á saltfiskverði, er "einur kr. 2.25 pr. kg fob og freðfisksverði !'r- 1.33 pr. lbs. fob., þó fari ekki ábyrgðin fram úr kr. 0.35 pr. lbs. á fréðfiskinum. f‘etta er gert án þess að nokkur uggi hafi 'erið seldur fyrirfram og án þess að vitað Sc> iivaða verð kunni að fást fvrir þær vör- Ur> sem tekin er ábyrgð á. f-g veit ekki, hvort almenningur hefur gert sér ljóst, hversu afdrifarík þessi akvörðun AJþingis getur reynzt, en hitt l'ykir mér sýnt, að sjaldan hafi löggjafa- samkoma íslendinga afgreitt jafn stórvægi- legt mál með jafn ótraust undir fótum og að þessu sinni. Evað mundir þú gera, bátseigandi, ef skipverjarnir kæmu lil þín einn góðan veðurdag og segðu: „Við skulum róa og við skulum reyna að afla, en við viljum eiga allt á þurru. Við viljum fá fast kaup og við viljuin að það hækki um 30% frá því sem verið hefur. Við viljum jafnframt að sett sé trygging fyrir því, að það verði greitt.“ Myndir þú þegar bregða á það ráð, að taka þessu fcoði, án þess að hafa hugmynd um, við hvaða verði þú gætir selt fram- leiðslu þina? En það er einmitt þetta, sem Alþingi gerði með samþykkt ábyrgðarlaganna. Hinu tjáir ekki að mæla í gegn, að út- gerðin þurfti að fá hækkað afurðaverð eða framleiðslukostnaðinn lækkaðan eða bvorttveggja. Eins og horfði, þegar ábyrgð- arfrumvárpið var samþykkt, átti tvímæla- laust að gera alvarlega tilraun til að vega að dýrtiðardraugnum, og það er mín skoð- un, að eins og þá var allt í pottinn búið, hefði verið aðstaða til að fá nokkru um þokað í þeim efnum, þrátt fyrir stjórnar- kreppuna. En Alþingi kaus ekki að gera tilraun til að koma framleiðsluhag lands- manna í heilbrigðara horf, heldur kreisti það úr sér hálmstrái, sem segja má að allt lafi á um stundarsakir. — Flokksóttinn við kjósendurna lætur ekki að sér hæða, enda má segja, að hann sé fóturinn undir mörgu graftarkýlinu, sem nú þjáir þjóðarbúkinn. En hvers vegna var réttur tími til að gera atlögu að hinum háa framleiðslukostnaði um síðustu áramót?

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.