Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1947, Page 8

Ægir - 01.03.1947, Page 8
70 Æ G I R i'járöflunar á annarra mið, ef af nógu sé að faka? Ef markaðir standa siopnir, skapast eftirspurn, sem færir líf i fiskveiðarnar. Við það slitna stofnarnir og þróunin stöðv- ast ekki fvrr en veiðarnar bera sig ekki lengur. I’jóðin, sem býr við fiskimiðin, slendur þá eftir við rýran kost og litlar vonir um framtíðina vegna fjáraflastarf- semi framandi manna, en fjáraflaþjóðin verður að borfa upp á að sjóðirnir, sem bún dró saman, liverfi eins og dögg fyrir sólu til framfærslu álitlegs hóps atvinnu- leysingja. Þessi þróun er að sjálfsögðu jafn hugsanleg þar sem um er að ræða fiskveið- ar þær, sem greinir í 3. flokki, en hér eru vítin verri, þar sem orsök bölsins er síður réttlætanleg. Því hefur verið haldið fram, að þjóðum, sem þurfa að halda úti stórum herskipa- flotuin, sé nauðsynlegt að stunda fiskveiðar af kappi og sækja til fjarlægra hafa sjó- mannastéttinni til þjálfunar. Mætti virðast, að þetta sjónarmið færi að verða úrelt, þar sem allt virðist benda til að herskipafloti skipi æ síðri sess í styrjöld, er stundir líða fram. Þá hefur heyrzt, að bráefnaþörf þéttbýlla, nýlendulausra landa réttlættu fiskveiða- sókn til framandi hafsvæða. Ef til vill sýnir sú staðhæfing okkur bezt innsta eðli þess, sem raunverulega er að gerast. Því sú þjóð, sem verður að þola fiskveiðar annari-a i heimahöfum sínum, býr raunverulega við sama kost og nýlenda, að því leyti að liún er rænd tekjulindum. Á hinn bóginn fer Inin á mis við þau fáu hlunnindi, sem ný- lenduþjóðinni falla í skaut. Henni opnast t. d. ekki markaðir fyrir afurðir sínar, heldur öfugt. Einmitt þeir markaðir, sem liún gæti, aðstöðu sinnar vegna, byggt fram- tíð sína á, ef allt væri í lagi, lokast henni, af því að annarra manna hendur fylla þá með hráefnum hennar. — Hráefnamótbáran á sér tæplega tilverurétt. Enda er tæplega hægt að liugsa sér óhagfelldari skiptingu hráefna en t. d. þá, að suðræn þjóð geri út fiskveiðaleiðangur til norðlægra hafa til þess að berjast við frost og kafaldsbylji í þeim tilgangi að veiða þorsk, en þjóðir norður við heimskautsbaug komi sér upp gróðurhúsum til ræktúnar suðrænna aldina. Það verður að líta svo á, að sú tegund fiskveiða, sem talin er í 4. flokki, sé sízt réttlætanleg allra fiskveiða. Þó kann þessi regla, eins og allar aðrar, að eiga sér und- antekningar. Hugsanlegt er til dæmis það, að einhver þjóð liafi engar teljandi auð- lindir, af neinu tagi, ekki einu sinni í sjón- mn, sér til lífsframdráttar. Ef slík þjóð hef- ur ekki bolmagn til þess að leggja undir sig nýlendu, en kann að fiska, niundi henni i’erða liendi næst að sækja til fanga, til fjáröflunar, vegna frumstæðustu lífsnauð- synja, á mið annarra þjóða. Þannig er nu ástatt með Færeyjar, svo ég nefni nafn, og þannig getur farið liverri þjóð, sem er að mestu leyti háð fiskveiðum, þangað til við- urkenndar fást viðunandi allsherjar reglur á þessu sviði í viðskiptum og sambúð þjóð- anna. Ef nú verður dregið saman, í sem fæst- um orðum, það, sem að framan hefur verið sagt, komumst við að þessari niðurstöðu: I. Fiskveiðar i lieimsliöfunum eiga á ser mismunandi háan rétt, eftir því, hvers eðlis þær eru. 1. Sjálfsagðastar og eðlilegastar eru fiskveiðar í heimahöfum til eigm nota aflans. 2. Fiskveiðar í heimahöfum til útflutn- ings aflans eru rétthærri en aðrar fiskveiðar (nema 1., sem þær koma aldrei, af eðlilegum ástæðum, til þess að keppa við). Þetta byggist á því, að a) Auðæfi sjávar eru landfræðilega séð hluti af auðlindum nsesta lands. b) Framtíð og velsæld landsins kann að vera komin undir þessum auðæfum, og landið aðeins nieð góðu móti byggilegt af því, °8 og meðan að þeirra nýtur við. c) Hér er um að ræða baganlegustu skiptingu þeirra bráefna, sem 1 sjónum eru, og tryggingu fyr11 beztu nytjum þeirra. Síður ei hætta á, að þjóð arðræni sín fiski-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.