Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1947, Page 25

Ægir - 01.03.1947, Page 25
Æ G I R 87 enn meiri kosti vélskipsins frain yfir eim- skipið. Olíuflutningaskipið ,,AurekuIa“, seni er vélskip og var nýlega smíðað við Tyne, liefur verið útbúið til þess að brenna hrá- olíu í dieselvélum sínum, þ. e. sams konar oliu og notuð er til að kynda undir kötlum. Enda þótt eyðslan sé nokkru meiri með þessu móti, þá sparast þó hlutfallslega elds- neytiskostnaðurinn, að því að a?tlað er um >'10 af hundraði. Ekki er auðvelt að fá skipakoí alls staðar eins og nú er liáttað um kolaframleiðsluna í lieiminum. Olían er miklu auðfluttari frá olíuframleiðslusvæðunum til liafnahorga heimsins. Enda þótl sumum muni sárna sú slaðreynd, að kol liafa orðið að lúta í lægra haldi fyrir olíu í baráttunni um yfirráðin á höfunum, þá verður þó að viðurkenna, að brezkir skipaeigendur verða að keppa um farm og farþega við mjög harðvítuga er- lenda keppinauta og þeir verða þar af leið- andi að nota það eldsneyti, sem að öllu samaniögðu er lieppilegast. Nokkrir ókostir. En jafnframt og taldir eru upp kostir oli- unnar fram yfir kolin þá er ekki nema rétt að benda á, að breytingin frá olíu lil kola er ekki að öllu gallalaus. Bretland er ekki olíufrainleiðandi að neinu ráði. Auðlegð okkar fyrr á tímurn Ityggðisl á koluin og skipum, sem brenndu kolum. Ódýrar mat- vörur og hráefni var liægt að flytja til Bretlands að miklu leyti vegna þess, að skip okkar gátu flutt kol í kjölfestu frá landinu aftur. Nú niun þessi kostur við kolákynd- inguna hverfa. Einnig er liætta á, að þessi þróun muni leiða af sér erfiðleika fvrir kolanámurnar og kolanámuverkamennina i Skotlandi, Suður-Wales og Norðaustur- Englandi. En ef þessi þróun heldur áfram, og ekki er hægt að ætla annað en svo verði, mun koma að því bráðlega, að kolin liverfi ger- samlega af höfunum. Það sem verður eftir til að minna á orðið skipakol, sem brátt mun gleymast, munu verða ryðgaðir kola- kranar í heimshöfnunum. Utgerá og aflabrögð í marz 1947. Sökum jiess, að þetla hefti er óvenjulega siðbúið, en hins vegar venja að birta ýtar- legt yfirlit yfir vertíðina í Sunnlendinga- fjórðungi í lok hennar ár hvert, og svo verð- ur einnig að þessu sinni, þá hefur verið slejipt að birta hér nú fréttir af aflabrögð- um sunnanlands. Vestfirðingafjórðungur. Patreksfiörður. Þar var góðfiski, en stirðar gæftir. Mest voru farnar 14 sjó- ferðir og reyndist mestur afli í sjóferð 12 smál. í marzmánaðarlok hafði aflahæsti báturinn fengið um 300 smál. Bíldudalur. Oftast var þar góðfiski, en crfið tíð til sjósóknar. í lok mánaðarins hafði aflahæsti báturinn fengið um 200 smál. Þingeyri. Ágætis afli var þar í mánuðin- um, eða um 10 smál. í róðri. Þann 27. marz liöfðu bátar á Þingeyri aflað: Sæhrímnir 350 smák, Skiðblaðnir um 300 og Gullfaxi um 200 smál. Flateyri. Oltast var róið 14 sinnum og var afli góður. Mesta veiði i sjóferð fékk v/b Garðar, 20 179 kg, og er það talinrt metafli í róðri á Flateyri. Hæstu aflahlutir frá 1. febr. til marzloka eru sagðir vera um sjö þúsund krónur. Suðureijri. Fyrri hluta mánaðarins var góður afli, en tregari, þegar leið á hann. En ef til vill mun koma að því, eftir því sem þróun vísindanna heldur áfram, að ol- ían verði einnig undir í baráttunni um yf- irráðin á höfunum fyrir atomorkunni, sem mun ef til vill, áður en alltof langt líður, verða notuð til þess að knýja skipin yfir heimshöfin.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.