Ægir

Árgangur

Ægir - 15.06.1971, Blaðsíða 19

Ægir - 15.06.1971, Blaðsíða 19
ÆGIR 149 Ársfundur alþjóðanefndar um fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi 1971 1.Inngangur: Dagana 27. maí til 5. júní 1971 var hald- inn í Halifax (Kanada) tuttugasti og fyrsti ársfundur International Commis- sion for the Northwest Atlantic Fisheries (ICNAF). Mættir voru fulltrúar frá öllum aðild- arríkjunum. Þess má einnig geta, að Jap- anir gerðust fyrir skömmu meðlimir í ráð- inu og sátu þeir einnig fundinn. Fulltrúi íslands var Jón Jónsson, forstj. Hafrann- sóknastofnunarinnar. ICNAF er stofnun sú, er hefur afskipti af veiðum og fiskstofnum í norðvestan- verðu Atlantshafi. Umdæmi hennar eru niiðuð við V.-Grænland og A.-strönd N.- Ameríku suður að 39° n. br. Austur-mörk- in eru 42° v.l. fslendingar hafa tekið þátt í störfum þessarar stofnunar frá upphafi. Eins og kunnugt er, var sókn okkar á svæðið all- naikil um nokkurt skeið, svo og afli. Und- anfarin ár hefur sókn og afli minnkað mik- ið og var s.l. ár lítill sem enginn. 2. Veiðin 1970 og ástand fiskstofnanna á svæðinu. Heildarveiðin á svæðinu nam 3.1 milljón tonna árið 1970 og er hér um að ræða um 0-4 milljón tonnum minni afla en 1969. Undanfarin ár hefur heildaraflinn aukizt ár frá ári og er þetta í fyrsta skipti sem hann minnkar. Afli minnkaði af öllum helztu tegundunum: þorski, karfa, síld, ýsu og flatfiskum, en á undanförnum ára- fug hafa ofangreindar tegundir verið yfir 90% af heildaraflanum. Sérfræðingar telja, að þótt eitthvað af þessari minnkun megi kenna minni sókn °g óhagstæðu umhverfi, þá sé meginor- sökin sú, að þessir stofnar séu ofnýttir, þ. e. sóknin sé meiri en það, sem þarf til þess að gefa hámarksarð. Selveiðin minnkaði í 300 þús. dýr árið 1970, miðað við 400 þús. árið 1969. Talið er að hér sé um að kenna meiri veiði en stofninn þolir. Þorskveiðin minnkaði að nokkru vegna minni sóknar á svæði 1 (Vestur-Grænland) og að nokkru leyti einnig á svæði 2 (Labra- dor) og svæði 3 (Nýfundnalandsmið). Vís- indamenn telja mjög æskilegt, að sem fyrst verði dregið úr sókn í þorskstofn- ana á þessu svæði. Þorskveiðin við Vestur-Grænland varð 112 þús. tonn árið 1970 og er það fjórð- ungur þess sem hún var árið 1962 og eins hefur hlutur þorsksins í heildarveiðinni minnkað. Aðalorsakir hinnar minnkandi þorskveiði eru taldar vera: 1. mjög mikill ís, sem mikið dró úr möguleikum til veiða á tímabilinu frá marz til ágúst; 2. tiltölu- lega léleg hrygning undanfarin ár og 3. minni sókn. Þess má geta, að rækjuveiðar hafa mjög aukizt við Vestur-Grænland og nam heild- araflinn af rækju 8.600 tonnum árið 1970. Eins og getið hefur verið, var árið 1970 mjög erfitt ísár við Vestur-Grænland og náði ísinn um þremur breiddargráðum norðar en venjulega í marz. Hitastig sjávar var óvenju lágt við V.- Grænland. I vesturhalla Fyllubanka var hiti undir núll gráðum í september og ber þetta ásamt lágri seltu vott um óvenju- mikið rennsli pólsjávar og eru þetta talin alvarleg tíðindi, að því er snertir hrygn- ingu þorsks á svæðinu. Við norðanvert Vestur-Grænland voru árgangarnir frá 1965 og 1966 mest áber- andi, en þeir eru taldir af miðlungsstærð

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.