Ægir

Volume

Ægir - 15.05.1974, Page 7

Ægir - 15.05.1974, Page 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 67.ÁRG. 7.TBL. 15. MAÍ 1974 EFNISYFIRLIT: Utg’erðarnám 121 © Ingimar Jóhannsson: Um fiskirækt 122 • Útgerð og aflabrögð 125 Loðnuvertíðin 130 • Skólakynning Stýrimannaskólans i Reykjavík 133 • Fiskaflinn í ágúst 1973 og 1972 134 • Utfluttar sjávarafurðir í febrúar 1974 og 1973 136 • Ný fiskiskip: Haförn EA 155 138 Garðar II SH 164 138 Múli ÓF 5 139 Arnarnes IS 133- 140 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG (SLANDS HÖFN, INGÓLFSSTRÆTI SlMI 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELlSSON (ábm.) JÓNAS BLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GÍSLI ÓLAFSSON PRENTUN: ÍSAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 750 KR ÁRGANGURINN KEMUR ÚT HÁLFSMÁNAÐARLEGA Útgerðarnám Um þessar mundir er mikill áhugi fyrir því bæði meðal út- vegsmanna og sjómanna og félagssamtaka þessara aðila, að aukinn sé verulega kynn- ingarstarfsemi á sjómanns- starfinu og þá um leið sjó- mannaskólunum. I þessu blaði Ægis er sagt frá kynningar- degi Stýrimannaskólans í Reykjavík, en það féll niður úr þeirri frásögn að geta bæk- lings, sem nemendaráð þessa skóla gaf út á síðast liðnum vetri og er hið merkasta fram- tak. í þessum bæklingi er með- al annars efnis fjallað um ýmsa möguleika á að auka fjölbreytni skipstjóranáms- ins, og sérstök útgerðarrekstr- ardeild við Stýrimannaskól- ana nefnd, sem einn af þeim möguleikum. Það er ekkert vafamál að slíkt nám kæmi vel heim við námið í Stýri- mannaskólanum og þá reynslu, sem krafizt er af nemendum þess skóla til inngöngu. Það virðast fleiri vera farn- ir að finna nauðsyn þess að út- gerðarmenn menntist til starfa síns, líkt og aðrar atvinnu- stéttir, með öðrum hætti en langri reynslu, og má þar nefna þá tilraun, sem skóla- stjóri Tækniskólans sagði í sjónvarpsþætti fyrir skömmu að væri á prjónunum. Það er þegar orðin staðreynd, að nú um þessar mundir er ein- mitt að myndast útgerðar- mannastétt, sem ekki hefur langa reynslu að baki. Það er einnig viðurkennt, að skóla- nám getur aldrei algerlega komið í stað reynslu í starfi, og reynslan ekki heldur fylli- lega í stað skólanáms, en hér er ekki um neina valkosti að ræða. Það er ekki langur tími til að ala menn upp til starfa, þegar allsstaðar vantar fólk, heldur verður að ganga að því með oddi og egg að sérhæfa það í skólum til starfanna. Til þeirrar aðferðar verður að grípa í þessu efni, og þess vegna eru hugleiðingar nem- enda Stýrimannaskólans og tilrauna skólastjóra Tækniskól- ans mjög tímabærar. Hitt er svo annað mál, að sú spurning vaknar, hvort ekki verði, ef það á að fara af stað með þessa kennslu í tveimur skól- um, að samræma hana með einhverjum hætti.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.