Ægir - 15.05.1974, Qupperneq 11
Útgerð og
aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í marz 1974.
Gæftir voru slæmar framan af mánuðinum
vegna storma, en afli víða sæmilegur, þegar
farið var á sjó, og fór þetta batnandi með
batnandi veðurfari.
Afli bátaflotans í mánuðinum miðað við
óslægðan fisk varð 33421 (43797) lestir bol
fiskur, 272 (256) lestir hörpudiskur og 69
(86) lestir rækja. Tölur fyrir 1973 innan
sviga.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Hornafjörður: Þar var stormur og gæftir
slæmar allan mánuðinn. Þaðan stunduðu 9
(12) bátar bolfiskveiðar, allir með net og öfl-
Uðu alls 1062 (2148) lestir í 149 (243) sjó-
ferðum.
Vestmannaeyjar: Þar var stormur og gæftir
stirðar allan mánuðinn. Þaðan stunduðu 52
bátar veiðar. 2 með handfæri og öfluðu 24
iestir, 20 með net og öfluðu 3675 lestir og 30
með botnvörpu og öfluðu 1275 lestir, aflinn
alls varð 4974 lestir bolfiskur í 565 löndunum.
Vegna eldgossins var engin útgerð í Vest-
mannaeyjum í marz 1973.
Stokkseyri: Þaðan stunduðu 3 (7) bátar
veiðar með net og lönduðu heima 52 (230)
lestum í 8 (40) löndunum og voru gæftir mjög
stirðar.
Eyrarbakki: Þaðan stunduðu 5 (9) bátar
veiðar með net og botnvörpu og lönduðu heima
193 (573) lestum í 39 (84) sjóferðum. Gæftir
voru slæmar.
Þorláksliöfn: Þar var veður gott allan mán-
uðinn og gæftir sæmilegar. Þaðan stunduðu
ló (65) bátar veiðar, 35 með net og öfluðu
3197 lestir, 10 með botnvörpu og öfluðu 293
lestir, aflinn alls var 3490 (6927) lestir í 464
(634) sjóferðum.
Grindavík: Þaðan stunduðu 77 (81) bátur
veiðar, 42 með net og öfluðu 3498 lestir, 35
með botnvörpu og öfluðu 1150 lestir. Aflinn
alls varð 4648 (8369) lestir í 670 (1052) sjó-
ferðum. Gæftir voru þar sæmilegar.
Sandgerði: Gæftir þar voru allgóðar í mán-
uðinum. Þaðan stunduðu 45 (52) bátar veiðar,
11 með línu og færi og öfluðu 320 lestir. 13
með net og öfluðu 2028 lestir, 21 með botn-
vörpu og öfluðu 642 lestir. Aflinn alls varð
2990 (4365) lestir í 457 (584) sjóferðum.
Keflavík: Þar voru gæftir góðar framan af
mánuðinum en stirðar seinni partinn. Þar
stunduðu 51 (52) bátar veiðar, 10 með línu og
öfluðu 116 lestir, 9 með botnvörpu og öfluðu
253 lestir, 32 með net og öfluðu 3363 lestir.
Aflinn alls varð 3732 (6536) lestir í 614 (883)
sjóferðum. Auk þess landaði þar togarinn Dag-
stjarnan 443 lestum úr 4 veiðiferðum.
Vcgar: Gæftir voru góðar allan mánuðinn.
Þaðan stunduðu 2 (3) bátar veiðar með net
og öfluðu 381 (599) lestir í 53 (71) sjóferð.
Hafnarfjörður: Þar lönduðu 5 (7) bátar
afla, sem fenginn var á línu, net og botnvörpu.
Aflinn alls varð 278 (1068) lestir í 16 (35)
veiðiferðum. Ennfremur lönduðu þar togar-
arnir Maí, Júní og Vestmannaey 1199 lestum.
Reykjavík: Veður var gott í mánuðinum, en
róðrar lítið stundaðir vegna aflatregðu. Það-
an stunduðu 20 (30) bátar veiðar með færi,
net og botnvörpu og öfluðu 1099 (1724) lestir
í 68 (173) veiðiferðum. Ennfremur lönduðu
þar 7 togarar 1515 lestum.
Akranes: Þar voru gæftir stirðar fyrri hluta
mánaðarins en góðar seinnipartinn. Þar stund-
uðu 8 (11) bátar veiðar með línu og net og
öfluðu 1150 (1615) lestir í 141 (160) sjóferð-
um. Ennfremur landaði Krossvík 172 lestum
úr tveim veiðiferðum.
Rif: Gæftir voru góðar í mánuðinum Þar
Æ GIR — 125