Ægir - 15.05.1974, Side 16
Loðnuvertíðin
Vikan frá 3. marz til 9. marz.
Segja má að bræla hafi verið flesta daga
vikunnar á miðum sunnan lands og austan,
en sunnudaginn 3. marz var þó gott veður
þar, og fongu 39 skip 5600 tonn. Mest veiddist
á svælinu frá Ingólfshöfða og vestur fyrir
Vestmannaeyjar, en eftir það má segja, að
engin veiði hafi verið á því svæði. Heldur
betra veður var á miðunum í Faxaflóa og við
Snæfellsnes og þar íengu 32 skip 5515 lestir
miðvikudaginn þann 6. marz, en til vikuloka
var hvergi veiði nema í Faxaflóa og útaf Snæ-
fellsnesi, en þó óveruleg.
Vikuaflinn varð samtals 19.123 lestir og er
það minnsti vikuafli það sem af er vertíðar.
Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun var í viku-
lokin samtals 359.129 lestir en var á sama
tíma í fyrra 282.621 lest.
Vikan frá 10. marz til 16. marz.
Gott veiðiveður var alla vikuna, en lítil veiði
á öllum miðum. Rannsóknarskipið Árni Frið-
riksson leitaði um allt svæðið sunnan lands
og austan ásamt nokkrum veiðiskipum, en
engin loðna fannst þar. Um miðja vikuna
glæddist afli í Faxaflóa og úti af Snæfellsnesi,
þar fengu bátar góðan afla seinni part vik-
unnar af óhrygndri loðnu, sem var mjög góð
til frystingar.
Miklar bollaleggingar urðu um það, hvaðan
þessi loðna væri að komin, þar sem sú loðna,
sem veiddist á þessu svæði í fyrri viku var
öll hrygnd.
Flestir töldu útilokað, að þessi ganga hefði
komið hofðbundna leið, aðrir töldu, að þessi
óhrygnda loðna væri komin frá Grænlandi,
enn aðrir töldu, að hún hefði komið suður með
Vestfjörðum og rckstuddu þá tilgátu með því,
að togarar hefðu lóðað á loðnu úti af Vest-
fjörðum.
Margir bátar höfðu hætt loðnuveiðum, en
nokkrir byrjuðu aftur þegar þessi ganga kom.
Vitað var um 79 skip, sem fengu afla í vik-
unni, en skipin voru 136, þegar þau voru
flest.
Vikuaflinn varð samtals 32.844 lestir og þá
höfðu 100 skip fengið 1000 lestir eða maira.
í vikulokin var heildaraflinn á vertíðinni
orðinn samtals 391.973 lestir, en var á sama
tíma í fyrra 345.008 lestir, en þá höfðu 92 skip
fengið einhvern afla.
Vikan frá 17. marz til 23. marz.
Aðalveiðisvæði vikunnar var í Faxaflóa og
úti af Snæfellsnesi, en lítil sem engin veiði
fyrir sunnan land. Gott veður var alla vikuna
og mjög góður afli úti af Snæfellsnesi.
Miklir löndunarörðugleikar voru og skip
urðu að sigla með afla til Bolungavíkur og
Siglufjarðar svo og mikið til Vestmannaeyja.
Beztu veiðidagar vikunnar voru sunnudagur-
inn og mánudagurinn, en þá fengu 85 skip
mjög góðan afla við Snæfellsnes, eða um 22
þús. lestir.
Vikuaflinn varð samtals 52.397 lestir og
þá var heildaraflinn orðinn 444.370 lestir en
var á sama tíma í fyrra 385.007 lestir. í viku-
lokin höfðu 102 skip fengið 1000 lestir eða
meira og loðnu hafði verið landað á samtals
27 höfnum.
Viken frá 24. marz til 30. marz.
Aðalveiðisvæði vikunnar var sem fyrr við
Snæfellsnes. Engin veiði var á öðrum svæð-
um. Loðnan, sem veiddist, var langt komin
eða búin að hrygna og þar af leiðandi óhæf
orðin til frystingar.
Fjöldi báta hcfðu nú hætt veiðum, en vitað
var um að 67 skip höfðu fengið einhvern
afla í vikunni. Tícarfar í vikunni var rysjótt
og vart veiðiveður suma dagana.
Vikuaflinn varð samtals 12.690 lestir og
heildaraflinn frá vertíðarbyrjun orðinn sam-
130 — Æ GIR