Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.05.1974, Qupperneq 19

Ægir - 15.05.1974, Qupperneq 19
Skólakynning Stýrimanna- skólans í Reykjavík Laugardaginn 20. apríl var haldinn í Stýri- rnannaskólanum kynning á náminu í skólan- Ufn og þeim atvinnuréttindum, sem nemend- ur ö'ðlast með náminu þar. Allar upplýsingar voru veittar um skólann, svo sem námsefnið, Lvaða bækur kenndar, kennslufyrirkomulag- ið, inngönguskilyrði, atvinnuréttindi úr hverju námsstigi og sýnd voru hin ýmsu tæki, sem uotuð eru við kennsluna. Þarna var að vonum margt forvitnilegt að síá, því að skólinn er orðinn velbúinn að isekjum. Kennarar og nemendur voru til leið- beiningar og sýndu notkun tækjanna. í einní stofunni lágu frammi kennslubækur og bæk- lingar um skólann, í annarri var gýrókompás, segulkompás, miðunarstikur, sextantar, sjóúr, sjókort, staðarvísir og líkan, sem sýndi af- stöðu tungls og sólar til jarðarinnar, í þriðju stofunni voru fiskileitartæki, uppi í turninum fadar (í gangi) og úti í nýbyggingunni, sjálf- stýring, (fullk. eftirlíking), lóranmiðunar- stöð tengd sendi til að líkja eftir raunveruleg- Urn aðstæðum, ljósmiðunarstöð og nýjasta gerð af gýrókompás (Anschútz kompás). 1 hátíðasal skólans voru kvikmyndasýningar og syndar japanskar og þýzkar myndir af veiðum skuttogara og kennslu fiskimannsefna. Kaffistofan niðri var opin gestum. Kynningin var vel undirbúin af skólans hálfu, en aðsókn var fremur lítil og líkast L1 hefur orsökin verið sú, að ekki var hægt að vekja athygli á henni í blöðum. Kynningar- Plagg, sem átti að senda í alla gagnfræða- og nienntaskóla virðist ekki hafa borizt í þær stofnanir í tæka tíð. Kynning fór því fram- hjá fjölmörgum, sem hefðu sótt hana, ef þeir hefðu haft hugmynd um að þessi kynning íseri fram. En þó að svona tækist til um aðsóknina í Þetta skipti, er vonandi, að þessi starfsemi verði ekki látin niður falla, heldur verði kynn- ingin endurtekin næsta vor. Það er nú svo, þótt undarlegt megi virðast, að það er fyrirsjáanlegur hörgull á skipstjórn- armönnum, ef svo fer fram sem horfir um að sóknina að stýrimannaskólunum og 1. stigs deildunum, sem starfrækja átti á nokkrum stöðum úti á landi, en það starf hefur fallið niður vegna skorts á þátttöku, nema í Vest- mannaeyjum, þar eru 11 nemendur í vetur. í Stýrimannaskólanum í Reykjavík eru 160 nemendur, 19 í undirbúningsdeild, 62 í I. stigi, 45 í II. stigi, 24 í III. stigi og 10 í IV. stigi. Það eru nemendur, sem lokið hafa II. stigi, sem fiskiflotinn hefur mesta þörf fyrir, þar sem þeir nemendur hafa hlotið rétt til að vera skipstjórnarmenn á fiskiskipum af hvaða stærð sem er að tilskyldum lögboðnum sigl- ingatíma. Eins og sést af framansögðu, þá voru nem- endur í II. stigi ekki nema 45 í skólanum í vetur, og flestir þeirra halda áfram námi í III stigi, sem ekki er nema gott eitt um að segja, en eins og að líkum lætur, þá tekur farskipa- stóllinn svo bróðurpartinn af þeim, sem út- skrifast úr III. stigi, og það má segja, að um fullnægjandi endumýjun sé að ræða á þeim flota. Það eru breytingar á því frá ári til árs í hvaða hlutföllum nemendur leita á hinar ýmsu gerðir flotans, en af þessum 45 væri óráðlegt að gera ráð fyrir að nema um það bil helmingur kæmi til starfa á fiskiflotanum. Þörfin fyrir eðlilega endurnýjun manna með skipstjórnarréttindi á fiskiskipum getur varla verið minni en 50—60 manns með II. stigs próf árlega. Ef það fer að vanta 20—30 manns til eðli- legrar endurnýjunar skipstjórnarmanna á fiskiflotann, þá sjá allir hvernig það endar. Æ GIR — 133

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.