Ægir

Årgang

Ægir - 15.06.1974, Side 7

Ægir - 15.06.1974, Side 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 6 7. ÁRG. 9. TBL. 15. JÚNÍ 197 4 Hafréttarráðstefnan EFNISYFIRLIT: Hafréttarráðstefnan 161 Jakob Jakobsson og Sveinn Sveinbjörnsson: Síldarleit 1973 162 Útg-erð og- aflabrögð 169 Fiskveiðamar í heim- inum 1972 173 Fiskaflinn í október 1973 og- 1972 178 Ný fiskiskip: Guðbjörg ÍS 46 180 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG [SLANDS HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI SÍMI 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELÍSSON (ábm.) JÓNAS BLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GÍSLI ÓLAFSSON PRENTUN: ÍSAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 750 KR ÁRGANGURINN KEMUR ÚT HÁLFSMÁNAÐARLEGA Innan skamms hefst í Caracas í Venezuela þriðja Hafréttarráðstefnan á vegum Sameinuðu þjóðanna. Talið er að þetta verði fjölmennasta ráðstefna sem haldin hefur verið og má ef til vill af því ráða þá áherzlu, sem riki heims leggja á þessi mál. Sú tækniþróun, sem átt hefur sér stað á síðustu tím- um hefur til muna aukið á þýðingu hafanna, þar sem nú eru fyrir hendi eða innan sjón- máls, möguleikar á nýtingu jarðefna úr botni hafanna. Vilja flest ríki tryggja sér hluta af þeim auðæfum, sem þar finnast. Þá hefur þýðing hafanna til siglinga vaxið gíf- urlega með auknum milliríkja- viðskiptum og á síðustu tím- um hefur þróun hertækni auk- ið verulega á hernaðargildi heimshafanna. Sú hlið þessara mála, sem snýr að okkur er þó fyrst og fremst rétturinn til lögsögu yfir fiskauðlindunum kring um landið. Sú venja hefur skapast að aðgreina auðlindir á eða í botni frá auðlindum í sömu hafsvæðum yfir botnin- um. Sú röksemdarfærsla, sem liggur að baki þessarar skipt- ingar er að okkar dómi fráleit og verðum við að vona að það takist að hnekkja henni og meðhöndla fiskauðlindir á sama hátt og aðrar auðlindir hafsins. Við ramman reip er þar að draga, þar sem mörg ríki, einkum í Evrópu eiga hagsmuna að gæta í sambandi við nýtingu jarðefna á heima- slóðum en fiskveiðihagsmuna á fjarlægum slóðum. Hvert ríki verður að meta frá sínu sjónarmiði hverju á að fórna og hverju á að halda. Af þessu leiðir að einkum þau ríki, sem hafa fjölþætta hagsmuni hafa verið treg til að marka ein- dregna stefnu, en vilja halda opnum leiðum til samninga um einstök atriði. Þrátt fyrir þetta virðist fylgi við 200 mílna lögsögu, yfir auðlindum, þar með fisk- auðlindum, hafa vaxið veru- lega frá því undirbúningur að ráðstefnunni hófst. Þ. á m. hafa áhrifamikil samtök í Bretlandi, sem hefur verið landa íhaldsamast í lögsögu- málum, lýst yfir að ríkis- stjórninni beri að marka þessa stefnu. Verðum við að vænta að út úr þessu komi lausn, sem fel- ur í sér viðurkenningu á rétti okkar yfir fiskauðlindunum, þótt það geti dregist fram yfir Caracas-ráðstefnuna, en þegar er farið að ræða um að halda þurfi aðra til að ganga endan- lega frá málunum.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.