Ægir - 15.06.1974, Qupperneq 13
Á tímabilinu 18.—22. október fékkst mjög
Sóð veiði um 20 sjm. NV af Papabanka og að
því er virtist var þarna verulegt síldarmagn.
Þessi síld var á mikilli hreyfingu SA eftir og
tapaðist fljótlega, enda voru veður slæm og
erfitt að fylgjast með ferðum hennar.
Það sem eftir var mánaðarins voru íslensku
skipin ýmist að veiðum NV af Noup Head eða
ÁNA af eyjunni Fair Isle og A af Sumburgh
Head og fengu nokkurn afla annað veifið
Seinustu daga leiðangursins leitaði Árni Frið-
riksson síldar N, NV og N af Foula ásamt
nokkrum íslenskum og færeyskum skipum, en
án teljandi árangurs.
Afli íslensku síldveiðiskipanna í Norðursjó
árið 1973 mun hafa numið 43 þús. lestum, og
er það svipað aflamagn og fékkst árið á undan.
Þegar þetta er ritað hafa skýrslur um skipt-
ingu aflans milli veiðisvæða enn ekki borist, en
þó er ljóst að aflinn hefur hlutfallslega aukist
í Skagerak og í austanverðum Norðursjó, en
fremur minnkað á Hjaitlandsmiðum. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum mun heildarafli allra
þjóða í Norðursjó, að Skagerak meðtöldu, hafa
numið um 540 þús. lestum og er það mjög
svipaður aíli og fékkst á árinu 1972.
Eins og kunnugt er, eru það Danir sem
stundað hafa smásíldarveiði í Norðursjó í
stórum stíl á undanförnum árum. Árið 1972
varð afli þeirra 249 þús. lestir, en á árinu
1973 hafði hann minnkað um 33 þús. lestir,
þ. e. a. s. niður í 216 þús. lestir. Það má með
mynd. Síldarleitarleiðangur á Hjaltlands- og Orkneyjum 25. júní — 30. júlí 1973. Síldar1-
svæði eru sýnd sem skástrikaðir reitir.
ÆGIR — 167