Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 12
Utgerð og
aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
16. — 31. maí 1974.
Gæftir voru góðar á öllu svæðinu, en fáir
bátar stunduðu veiðar vegna umskipta á veiði-
aðferðum og þrifa á skipunum eftir vetrar-
vertíðina. Afli bátanna varð 4787 (4186) lest-
ir af bolfiski, 93 (110) lestir af rækju, 151
(172) lest af humri, 138 lestir af spærlingi
og auk þess lönduðu togarar 4978 lestum.
Allur aflinn er miðaður við óslægðan fisk.
Tölur innan sviga eru frá fyrra ári.
Afli í einstökum verstöðum:
Homafjöriður. Þar stunduðu 13 (15) bát-
ar veiðar með botnvörpu og öfluðu 278 (186)
lestir af bolfiski og 75 (42) lestir af humri.
Vestmannaeyjar. Þar stunduðu 32 bátar
veiðar með botnvörpu og öfluðu 625 lestir af
bolfiski og 13 lestir af humri.
Stokkseyri. Þar stunduðu 5 (4) bátar veið-
ar með botnvörpu og öfluðu 35 (25) lestir
af bolfiski og 6 (6) lestir af humri.
Henning Fredriksen Arinbjörn Ólafsson
Stokkseyri Keflavík
Eyrarbakki. Þar stunduðu 3 (6) bátar veið-
ar með botnvörpu og öfluðu 68 (55) lestir af
bolfisk og 1 (2) lestir af humri.
Þorláksliöfn. Þar stunduðu 9 (11) heima-
bátar veiðar með net og botnvörpu. Auk
þeirra stunduðu 10 (39) aðkomubátar veiðar
með botnvörpu. Aflinn alls varð 254 (496)
lestir af bolfiski og 25 (75) lestir af humri.
Grindavík. Þar stunduðu 32 (22) heimabát-
ar veiðar og að auki 24 (38) aðkomubátar.
Aflinn varð 1172 (1170) lestir af bolfiski,
9 (14) lestir af humri og 138 lestir spærlingur.
Sandgerði. Þar stunduðu 29 (26) heimabát-
ar veiðar auk 11 (26) aðkomubáta, og öfluðu
alls 576 (591) lest af bolfiski, 3 (87) lestir
af rækju og 5 (16) af humri.
Keflavík. Þar stunduðu 30 (33) bátar veið-
ar og öfluðu 500 (159) lestir af bolfiski og
5 (18) lestir af humri. Auk þess lönduðu þar
togarar 517 lestum.
Vogar: Þar stunduðu 2 bátar humarveiðar
og cfluðu 8 lestir af boifiski og 12 lestir af
humri.
Asgeir Gíslason Pétur Þorbjörnsson
Hafnarfirði Reykjavík
186 — ÆGIR