Ægir - 01.06.1979, Page 70
Tálknfirðingur BA 325
14. apríl sl. kom skuttogarinn Tálknfirðingur BA
325 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Tálkna-
fjarðar. Tálknfirðingur BA er byggður hjá Storvik
Mek. Verksted A/S í Kristiansund í Noregi, ný-
smíði nr. 86 hjá stöðinni, og er áttundiskuttogarinn
í eigu landsmanna, sem byggður er hjá umræddri
stöð. Skuttogari þessi er af svonefndri R-155 A
gerð frá Storviks, sömu gerðar og Gullberg NS og
Maí HF, en frábrugðinn fyrri skuttogurum af þessari
gerð að því leyti til, að breiddin er 40 em meiri,
svo og breytt fyrirkomulag, einkum varðandi íbúðir
og togþilfar. Tálknftrðingur BA hefur mun hœrri
mœlingu en fyrri systurskip, sem m.a. stafar af því
að hann er ekki byggður með mœlingabönd eins og
þeir fyrri, enda voru þeir byggðir fyrir norska
aðila, með 300 rúmlesta mörk sem kröfu.
Tálknfirðingur BA er í eigu Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar hf. Skipstjóri á Tálknftrðingi er Sölvi
Pálsson og 1. vélstjóri Kristján Friðriksson. Fram-
kvœmdastjóri útgerðarinnar er Pétur Þorsteins-
son.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt úr stáli skv. reglum Det Norske
Veritas í flokki >í< 1A1, Stern Trawler, lce
c, x MV. Skipið er skuttogari með tveimur þil-
förum stafna á milli og skutrennu upp á efra þilfar.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; geymslu og
asdikklefa; fiskilest; vélarúm og skutgeyma aftast
fyrir ferskvatn. Undir geymslu, asdikklefa og fiski-
lest eru botngeymar fyrir brennsluolíu. í vélarúmi
er hljóðeinangraður vélgæzluklefi.
Fremst á neðra þilfari er stafnhylki og keðju-
kassar, en þar fyrir aftan íbúðir. Aftan við íbúðir
er vinnuþilfar með fiskmóttöku og aftast stýris-
vélarrúm fyrir miðju. Til hliðar við fiskmóttöku
og stýrisvélarrúm er geymsla, verkstæði og vélar-
reisnir. S.b.-megin á vinnuþilfari er veiðarfæra-
geymsla, en b.b.-megin klefi fyrir ísvélar.
Mesta lengd ....................... 46.45 ni
Lengd milli lóðlína ............... 40.15 m
Breidd ............................. 9.40 m
Dýpt að efra þilfari ............... 6.50 'in
Dýpt að neðra þilfari .............. 4.35 m
Eiginþyngd .......................... 634 1
Særými (djúprista 4.30 m) ........... 930 1
Burðargeta (djúprista 4.30 m) .... 296 1
Lestarrými .......................... 350 rn’
Brennsluolíugeymar .................. 104 m’
Ferskvatnsgeymar ..................... 71 rm
Ganghraði (reynslusigling) ......... 13.0 hn
Rúmlestatala ........................ 351 brl.
Skipaskrárnúmer .................... 1534
Framarlega á efra þilfari er lokaður hvalbakur-
Fremst í hvalbak er geymsla en þar fyrir afta°
íbúðir. Aftan við hvalbak er togþilfarið. Vörpu'
renna kemur í framhaldi af skutrennu og greims|
í tvær bobbingarennur, s.b.- og b.b.-rennu, sem na
fram að hvalbak. Aftarlega á togþilfari, til hliðar
við vörpurennu, eru síðuhús (skorsteinshús). Yfir
afturbrún skutrennu er toggálgi, en yfir frambn111
skutrennu er bipodmastur, sem gengur niður í síðu'
húsin. Aftast á hvalbaksþilfari er brú (stýrishús)
skipsins, sem hvílir á um eins meters retsm
siðum er hvalbaksþilfar framlengt aftur að síðu
húsum. í afturkanti brúar er mastur fyrir hífin8ar
blökk.
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er Wichmann, gerð 6AX, s
strokka tvígengisvél með forþjöppu og eftirkaelinSu
sem skilar 1800 hö við 375 sn/mín. Vélin te0®1*
gegnum kúplingu skiptiskrúfubúnaði frá WlC; .
mann. Skrúfa skipsins er 4ra blaða úr ryðfríu sta >
þvermál 2050 mm, og utan um hana er skru
hringur. . • - frá
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist deihgm
Hytek af gerð FUC 800-69 HC, með úttök f>'rl_
fjórar vökvaþrýstidælur, sem eru fyrir vindur sDP
sins. Snúningshraði á dælum er 290 sn/mín m1
við 365 sn/mín á aðalvél, hámarks aflyfiú^5
deiligírs 460 hö. Dælur drifnar af aðalvél u
deiligír eru tvær G16, 104 hö hvor, og tvær G
123 hö hvor, lágþrýstidælur frá Brattvaag. ^
Hjálparvélar eru tvær Mercedes Benz, gefð ,
404A, 385 hö við 1500 sn/mín. Hvor vél
Markoni riðstraumsrafal, 240 KVA, 3x230 ^> .f
Hz. Við aðra hjálparvélina er varadæla U
vindukerfi skipsins af gerðinni Allweiler SHN v
386 — ÆGIR