Ægir - 01.08.1980, Page 10
Helgi Laxdal, Tæknideild Fiskifélaga fslands:
World Fishing 80
sótt heim
Dagana 2.-8. júní s.l. hélt breska tímaritið World
Fishing samnefnda alþjóðlega fiskveiðisýningu í
Bella Center í Kaupmannahöfn. World Fishing hefur
að undanförnu staðið fyrir slíkum alþjóðlegum
fiskveiðisýningum á þriggja ára fresti, síðasta
sýning var haldin í Kanada, nánar tiltekið Hali-
fax í Nova Scotia, í byrjun september árið 1977.
World Fishing er, eins og aðrar sýningar, mið-
stöð þeirra manna sem eru tengdir á einn eða annan
hátt þeirri atvinnugrein eða greinum, sem við-
komandi sýning fjallar um.
í þessu tilfelli er um miðstöð þess fólks að ræða
sem tengt er sjávarútvegi í öllum hans myndum,
veiðum, vinnslu, markaðsöflun o.s.frv.
Hingað koma aðilar, sem framleiða vélar og tæki
til nota í þessum atvinnugreinum frá nánast öll-
um heimshornum með sinar vörur, og skiptast á
skoðunum við starfsbræður sina vítt og breitt um
heiminn.
Þannig má líta á sýningar almennt sem miðstöð
skoðanaskipta og upplýsingamiðlunar, hverja á
sínu sviði, og fyrir þá sem eru að velta fyrir sér
kaupum á þeim búnaði sem til sýnis er hlýtur að
vera í því mikið hagræði að eiga aðgang að hlið-
stæðum búnaði frá mörgum framleiðendum á sama
stað til verð- og gæðasamanburðar.
Ýmsir aðrir aðilar standa fyrir sýningum á sama
sviði og allir kannast trúlega við Nor-Fishing,
sem haldin er af Noregs Varemesse annað hvort
ár og verður næst haldin í ágúst nú í haust í
Þrándheimi.
Kenneth C. Lucas, sem er einn af aðstoðarfram-
kvæmdastjórum Sameinuðu þjóðanna, setti World
Fishing 1980. I setningarræðu sinni fjallaði hann
um aðstoð við þróunarlöndin á sviði fiskveiða og
benti á nauðsyn þess, að á þessu sviði yrði mótuð
heildarstefna með heimsmynd í huga. Meðan á sýn-
ingunni stóð var haldin ráðstefna undir kjörorðmu
„Framtíðarmöguleikar fiskveiða í heiminum •
Ræðumenn ráðstefnunnar voru m.a. LauritsTm"11'
æs frá dönsku úthafsveiðisamtökunum, Julio Luna
frá Samameríska þróunarbankanum og Dr. Á-
Labon frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna (FAO). Jafnframt talaði Finn
Gundelach framkvæmdastjóri Efnahagsbandalags
Evrópu um landbúnað og fiskveiðar.
Á sýningunni voru 289 sýnendur frá 23 löndun1
og sýndu í 228 básum, og skiptast þannig, duí
sýningarefni:
Sýnendur
Fatnaður ....................... 2
Fiskirækt ...................... 4
Fiskvinnsla ................... 45
Hjálparvélar, skrúfubúnaður 35
Netagerðavélar ................. 4
Rafeindatæki, fiskileitartæki 6
Ráðgjafarfyrirtæki............. II
Siglinga- og staðsetningartæki I9
Skipasmíðastöðvar ............. 15
Skipsbúnaður .................. II
Sölu-og kynningarsamtök I7
Umbúðir og markaðsöflun 20
Útgáfuaðilar ................... 9
Veiðarfæri..................... 47
Þilfarsbúnaður ................ 38
öryggisbúnaður ................. 6
Danir voru með flesta bása, eða 76, en n®*
þeim komu Englendingar með 26 bása og þeir þrl
í röðinni voru Norðmenn sem sýndu í 18 bas ,
fslendingar voru þeir sjöundu í röðinni og sýu
10 básum. -f,
Samkvæmt sýningarskrá sýndu tíu íslensk ú' ^
tæki framleiðslu sína á þessari sýningu. Hér L
418 — ÆGIR