Ægir - 01.08.1980, Page 40
þilfari. Vökvaknúin skutrennuloka er í efri brún
skutrennu, felld lóðrétt niður í stýrisvélarrúm.
Frá fiskmóttöku er fiskurinn fluttur með færi-
bandi fram eftir fiskmóttökugangi að vinnuþilfari
(aðgerðarþilfari) fremst á neðra þilfari. B.b.-megin
aftantil á vinnuþilfari er móttökukassi og aðgerð-
araðstaða, en eftir aðgerð fer fiskurinn síðan í
gegnum tvö þvottaker með færiböndum og síðan að
lestaropum. Slóg flytzt útbyrðis um stokk.
Loft vinnuþilfars er einangrað og klætt með stál-
þynnum, en síður óeinangraðar.
Fiskilest er útbúin fyrir fxskkassa nema fremsti
hlutinn, sem er búinn uppstillingu. Lestin tekur um
1900 fiskkassa af 901 stærð, auk um 401 í stíur. Lest-
in er að mestu einangruð með plasti og klædd með
krossviði. Kæling í lest er með kælileiðslum í
lofti lestar.
A lest eru tvær aðallúgur, auk þess ein minni
lúga. Losun er möguleg um tvær losunarlúgur á
efra þilfari, upp af lestarlúgum á neðra þilfari,
önnur framan við yfirbyggingu en hin aftan við yfir-
byggingu.
Vindubúnaður:
Aftan við þilfarshús á efra þilfari eru tvær tog-
vindur (splittvindur), s.b,- og b.b.-megin. Togvind-
ur eru rafknúnar frá Brissonneau & Lotz Marine,
gerð 101 000-3. Hvor vinda hefur eina tromlu
(408 mmax 1308 mm0x 1660 mm), sem tekur um
1200 faðma af 3 1/4” vír. Togátak vindu á miðja
tromlu er 6.0 t og tilsvarandi dráttarhraði um
100 m/mín. Hvor vinda er knúin af 150 ha, 300 V,
975 sn/mín. Leroy jafnstraumsmótor.
Engar sjálfstæðar grandaravindur eru í skipinu,
og eru grandaravírarnir dregnir inn á flotvörpu-
vindu skipsins. B.b.-megin á togþilfari, aftan við
kolsýrurúm, er rafknúin hífingavinda frá Briss-
onneau & Lotz Marine, gerð 101-5002, búin tveim-
ur tromlum og koppi, knúin af 150 ha Leroyjafn-
straumsmótor. Hífingavindan er einnig notuð fyrir
pokalosun.
Skipið er búið rafknúinni flotvörpuvindu fra
Brissonneau & Lotz Marine, gerð 101-4003.
tromlumál 608 mm0x 1728 mm0x 3470 mm, tog'
átak 9 t og tilsvarandi dráttarhraði 70 m/mín.
Framan við yfirbyggingu eru tvær rafdrifnar
koppavindur frá Zaklady Mechanizmow. Framar/
lega á efra þilfari er rafdrifin akkerisvinda fra
Stocznia búin einni keðjuskífu og tveimur koppuo1,
Aftast á s.b.-þilfarshúsi er rafdrifin netsjáf'
vinda frá Atlas, gerð VS 6028.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.:
Ratsjá: Decca RM 926, 48 sml.
Ratsjá: Decca 150, 48 sml.
Seguláttaviti: Lilley & Gillie, spegiláttaviti í þa^''
Gyróáttaviti: Ansch’útz, Standard 6.
Sjálfstýring: Anschutz.
Vegmælir: Ben.
Miðunarstöð: Koden KS 540.
Loran: Micrologic ML 1000, sjálfvirkur loran
móttakari.
Loran: Teledyne TDL 601, sjálfvirkur loran
móttakari.
Dýptarmælir: Atlas Fischfinder 700, sambyggður
mælir með skrifara og myndsjá.
Asdik: Elac.
Netsjá: Atlas Netzsonde 840 með EchograPu
470 skrifara og kapli.
Talstöð: Drakkar CRM 0211.
Örbylgjustöð: ITT Marine, gerð STR 65/CR^
1565.
*
Af öðrum tækjabúnaði má nefna kallkerfi, vör.
og örbylgjuleitara. í stýrishúsi eru stjórntæki fyr'r
togvindur, flotvörpuvindu og netsjárvindu. ^ira
lengdarmælar frá MTl eru í stýrishúsi. í stjórU
klefa fyrir vindur eru stjórntæki fyrir togvinduf’
hífingavindu og flotvörpuvindu.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna: E1 ^
Zodiac slöngubát, þrjá 12 manna Viking gúmn11
björgunarbáta og Callbuoy neyðartalstöð.
448
ÆGIR