Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1980, Síða 10

Ægir - 01.11.1980, Síða 10
Oddur Benediktsson: Aflatölva Inngangur Tilkostnaður við veiðar hækkar sifellt. Og þá einkum vegna verðhækkana á olíu. Afkoma út- gerðarinnar verður því æ háðari hagkvæmri notk- un skipanna. Margbreytilegar upplýsingar flæða um brú fiski- skips: Fiskleitartæki gefa i sífellu frá sér upplýsing- ar. Boð um eigin afla og aflabrögð annarra berast að jafnt og þétt. Fylgjast þarf með atburðarás og tíma- og staðsetja atburði. Auk þess sem grípa þarf til eldri upplýsingaforða. Við veiðar verður skipstjórinn að taka flóknar ákvarðanir varðandi framkvæmd og framhald veiðanna. Ákvarðanir byggjast meðal annars á aflahorfum, fjarlægð til annarra miða, úthaldi, fjarlægð til löndunarhafnar, siglingarhraða, olíu- brennslu, auk veðurs. Spurningin sem gerist æ áleitnari er þessi, á hvern hátt er hægt að auðvelda skipstjóra á fiski- skipi ákvarðanartekt varðandi veiðar og þá sér- staklega, getur tölvan hjálpað til. Tölvukerfi til notkunar við fiskveiðar nefnist aflatölva. Aflatölva er útreiknings- og bókhalds- kerfi skipstjórans. Ymiskonar smátölvur skjóta nú upp kollinum í fiskiskipum: Tölvur til að fylgjast með olíueyðslu, tölvur í staðsetningatækjum, tölvur í fiskleitar- tækjum og tölvubúin fjarskiptatæki. Um þessar tölvur verður ekki fjallað hér. Þó full ástæða væri til að líta á tækjabúnaðinn í heild sinni. Undirritaður hefur unnið að rannsóknum á hag- kvæmni aflatölvu um hríð í samvinnu við Fiskeri- teknologisk Forskningsinstitutt í Þrándheimi. Og leitað hefur verið ráða hjá skipstjórum. Rannsóknirnar benda til að aflatölvan muni létta skipstjóranum úrvinnslu mikilvægra upplýs- inga. Ákvarðanir hans yrðu hnitmiðaðri, sem gæí> leitt til sparnaðar. Kerfiskröfur Meginkröfur sem gerðar eru til aflatölvunnar eru að hún sé þjál og örugg í notkun. Kerfið á að virka sem sjálfstæð heild. Skipstjor inn einn ræður hvaða upplýsingar tölvan geym>r og að sjálfsögðu vali verkefna. Aflatölvan getur skilað upplýsingum á texta formi jafnt og á grafísku formi. Aðallega er nota ^ ur skermur til aflestrar en þó er hægt að fá papPir, afrit. Tölvuforritin og gagnaskrár eru varðveitt kassettum — auk þess má fá kassettur með öðr efni til gagns og gamans. Aflatölvan getur tengst þeim staðarákvörðunaf tækjum sem gefa frá sér umreiknaða staðaf ákvörðun í lengd og breidd á stafrænu tö*'U tæku formi. Sé slíkt tæki ekki fyrir hendi ver^Uc skipstjóri að slá inn staðsetningu sína um leið aflatölur og aðrar upplýsingar. Aflatölvan á se sagt að geta unnið án beinnar tengingar við staða^ ákvörðunartækin, þótt slík tenging yrði til hæg arauka. Fortíð, nútíð og framtíð tengjast í aflatölvunnn Upplýsingar um fyrri veiðiferðir eru geynidar kasettum. Gögnum um yfirstandandi veiðiferð e safnað á kasettu. Og með þvi að spá um aflalíKU^ getur skipstjórinn látið tölvuna reikna útkomur mismunandi valkostum. Tilraunakerfið Til tilrauna var valin borðtölva að gerð Hew e Packard HP—85. Tölvan hefur lítinn grafís ^ skerm og innbyggðan prentara og kasettu. Hun viðtengjanleg við margs konar mælitæki. Nú skal tekið einfalt dæmi. Dæmið á við to 570 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.