Ægir - 01.11.1980, Side 21
Þessir eru um 87 metra langir og 1.594 rúmlestir að
stærð, með 4.200 hestafla Nohab Polar aðalvélar.
togarinn sem heitir nú „Giljanes”, um þessar
Niundir i klössun og mun hefja veiðar að henni lok-
'nni um áramótin.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum er talið að rúss-
neski kolmunnaveiðiflotinn norðaustur af íslandi
sé búinn að veiða um 1 milljón tonna á þessu ári.
Reynt var að fá þessa frétt staðfesta hjá
starfsmönnum sovéska sendiráðsins hér, en þeir
sögðust ekki fá neinar upplýsingar varðandi fisk-
veiðar þessar frá Moskvu.
Hrygningarstofn norsk-íslensku síldarinnar fer
Þ®gt stækkandi, svo sem sjá má á línuritinu hér að
neðan og framtíðarhorfur þessa stofns eru ennþá
°vissar. Á s.l. áratug hefur orðið veruleg breyting
a hegðun síldarinnar, sem aðallega felst í þvi, að
Þér áður hélt þessi stofn að hrygningu lokinni, í
eins árs ætisgöngu og hringferð um Noregshaf,
þ.e. til Bjarnareyja, Jan Mayen, íslands og endaði
að afliðnum vetri á hrygningarstöðvunum við
strendur Noregs, en nú heldur síldin sig allt árið
við strendur og í fjörðum Noregs.
Síðan hrun þessa síldarstofns varð, hafa jafn-
framt komið fram tveir hrygningarstofnar sem
halda sig alveg aðskilda, annar út af Mæri og hinn
við Lófót. Eru þetta leifar þess sem eftir lifir af
þessum áður risastóra stofni. Norðlægari hrygn-
ingarstofninn er a.m.k. helmingi stærri en sá suð-
lægari, áætlaður um 235.000 tonn, en reiknað er
með að báðir stofnarnir séu um 325.000 tonn. S.l.
3 ár er talið að norðlægari stofninn hafi staðið í
stað, eða vaxið lítið sem ekkert, og er uppistaða
þess stofns, eða yfir 50%, síld frá 1973 árgangin-
um. í þessum stofni hafa allir árgangar eftir 1973
verið mjög veikir, eða rétt sem svarar árlegum
afföllum hans, en þau eru talin vera um 25% að
jafnaði árlega.
Miklu örari endurnýjun og uppbygging hefur átt
sér stað hjá suðlæga síldarstofninum, og hefur
hlutfallsleg auking hans verið mikil, eða úr 30.000
tonnum í a.m.k. 90.000 tonn frá 1977 og eru ár-
gangarnir frá 1974 og 1976 góðir, en 1973 árgang-
urinn er álitin aðeins 15% af honum.
Framhald á bls. 623.
68 70 72 74 75 76 78 80
ÆGIR — 581