Ægir - 01.11.1980, Blaðsíða 22
Jón Sveinsson, tæknifræðingur:
Bátaflotinn er gamall
Ofveiði
Við höfum gert okkur fulla grein fyrir þvi að of-
veiði leiðir til ófarnaðar og fátæktar ef taumlaust
er stunduð.
Sildinni var ausið upp uns ekkert var til að veiða
1967-1968. Friðun og veiðitakmörkun hefir leitt til
þess að nú fer ört vaxandi síldarmagn það sem
veiða má og gefur nú umtalsverðar tekjur.
Hrygingarstofn íslenska sumargotssíldarinnar 1956-1979.
Svarta skýrslan og svartsýni
Við útkomu svörtu skýrslunnar fylltust margir
svartsýni þar sem hún sýndi ótvírætt að þorsk-
stofninn, þýðingarmesta fisktegund okkar, var í
bráðri hættu. Fiskifræðingarnir sýndu með sterk-
um rökum fram á mikinn vanda, og boðað var að
leggja jafnvel hálfum flotanum allt árið, eða
minnka flotann um helming, en hvorttveggja eru
þungir kostir. Stjórnmálamenn reyndu að rata
meðalveginn með veiðitakmörkunum.
Landhelgismálið
Ráðamönnum okkar, sem oftast eru skammaðir
bæði fyrir það sem þeir gera og gera ekki, tókst
með viti, þrautseigju og lægni að vinna hvert
þorskastríðið á fætur öðru, með frábærri framrW'
stöðu Landhelgisgæslunnar og einhuga stuðning1
allrar þjóðarinnar. Haldgóð rök fiskifræðinga
okkar komu að fullum notum. Samstillt átak lyfn
grettistaki.
Fiotinn þykir nú of stór
Fiskifloti okkar þykir nú of stór, þó er hann
tæplega 'A á móti fiskiflota Pólverja, sem erlt
stœrri þjóð en búa við fiskilítið og hálfdauú
Eystrasaltið.
Flotinn er gamall
Nefnd skipuð af iðnaðarráðherra 1971 þar sem
Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri var kjöt'
inn formaður, reiknaði út að meðalæfi fiskiflota
okkar reiknað yfir nokkur ár væri 22 ár.
255 skip á afsláttaraldri
Á næsta ári hafa 255 skip úr fiskiflota okkar ná
þessum afsláttaraldri. Á hverju ári næstu þrjú ann
bætast 55 skip í hópinn sem ætti að slá af. Samta s
eru þetta 420 skip til afsláttar á næstu þrem árum>
að tölu til meira en helmingur flotans.
Ef flotinn er raunverulega of stór, til að fm
nægja þörfinni sem verður á næstu árum, þarf a
fækka skipunum. Um þetta eru þó ekki allir sam-
mála, um þetta er deilt. Víst er þó að úrelding báta
flotans er svo ör um þessar mundir að af þeim sö
um minnkar flotinn ört þótt innlend smíði sé rekm
af fullum krafti.
Aldurslagasjóður
Matthias Bjarnason f.v. sjávarútvegsráðherra
hefir oft bent á að efla beri Aldurslagasjóð til ÞesS
582 — ÆGIR