Ægir - 01.11.1980, Síða 53
íbúðir eru einangraðar með glerull og klæddar
með plasthúðuðum plötum. Snyrtiklefar, svo og
þil að vélarreisn, eru óeinangraðir.
Vinnuþilfar, fiskilest:
Framan við skutrennu er vökvaknúin fiskilúga,
sem veitir aðgang að fiskmóttöku aftarlega á neðra
þilfari. í efri brún skutrennu er vökvaknúin skut-
rennuloka, sem er felld lóðrétt niður.
Fiskmóttaka er búin áluppstillingu og á framhlið
hennar eru þrjú op, sem lokað er með álborðum.
Framan við fiskmóttöku er renna og yfir henni
aðgerðarborð og safnrör fyrir slóg, sem leitt er út-
byrðis. Framan við aðgerðaraðstöðu er þvottaker
og færiband sem flytur síðan fiskinn í lest um op á
afturþili lestar. Fyrir karfa er sérstakt færiband,
sem flytur frá móttöku. í skipinu eru lifrar-
bræðslutæki.
Vinnuþilfar er einangrað og klætt. Á vinnuþil-
fari, s.b.— og b.b.—megin, er áluppstilling fyrir
geymslu á fiski og er loft vinnuþilfars beggja megin
búið kælileiðslum.
Fiskilest er einangruð með polyurethan og
klædd með 50 mm viðarklæðningu og krossviði að
hluta. Uppstilling er úr áli og í lofti eru kælileiðsl-
ur. Á lestinni er ein lúga sem nær að mestu yfir
•engd hennar. í lest eru færibönd til að flytja fisk.
Vindubúnaður:
Togvinda skipsins er rafdrifin frá Holmes Lek-
tron og er fremst á togþilfari, aftan við yfirbygg-
ingu. Vindan er búin tveimur togtromlum, sem
taka um 1200 faðma af 3 !4” vír, tveimur hjálpar-
tromlum, önnur tvískipt fyrir grandara og hin fyrir
hífingu á vörpu, og tveimur tvöföldum koppum á
endum. Vindan er knúin af 300 ha, 650 sn/mín,
250 V Laurence Scott jafnstraumsmótor.
Til að draga bobbinga fram eru tvær vökva-
knúnar vindur (háþrýstikerfi) frá Gearworks af
gerðinni Pullmaster H7A með einni tromlu
(178mm0x 292mm0x 203mm), togátak á tóma
tromlu 3.2 t. Vindurnar eru á efra þilfari, aftan við
togvindu.
Auk hífingartromlu á togvindu er ein háþrýsti-
knúin hifingavinda frá Véltak h/f, búin tromlu og
kopp, togátak á tóma tromlu 4 t, sem er staðsett
°fan á fremra bipodmastri.
Á afturþilfari, s.b— og b.b.—megin við skut-
rennu, eru tvær vökvaknúnar hjálparvindur (lág-
þrýstikerfi) frá Nor—Marine fyrir pokalosun og
útdrátt á vörpu. Hvor vinda er búin fastri tromlu
(33Omm0x 45Omm0x 460mm) og kopp, togátak 2 t
hvor vinda.
Á bátaþilfari aftan við brú er flotvörpuvinda,
knúin af tveimur Staffa háþrýstivökvamótorum.
Tromlubreidd er 2375 mm og ytra þvermál 1800
mm0.
Framarlega á efra þilfari er lágþrýstiknúin akk-
erisvinda frá Nor-Marine, búin tveimur útkúplan-
legum keðjuskífum og tveimur koppum.
Skipið er búið tveimur rafdrifnum kapalvindum
fyrir netsjártæki, önnur á toggálgapalli og hin á
bátaþilfari aftan við brú.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.:
Ratsjár: Tvær Decca RM 426, 48 sml.
Seguláttaviti: Þakáttaviti frá H.S.T.M.I. Co
Ltd.
Gyroáttaviti: Sperry MK 30 með stefnuskrifara
(course recorder).
Sjálfstýring: Sperry.
Vegmælir: Jungner Sal—Log.
Loran: Furuno LT 1, A/C loran.
Loran: Tveir Epsco sjálfvirkir loran C móttak-
arar, annar af gerð C—Nav XL og hinn af gerð
C—Navz, ásamt skrifara af gerð C—Plot 2.
Dýptarmælir: Kelvin Hughes Kingfisher II fiski-
leitarsamstæða, með MS 44 skrifara, BL 1
botnstækkun og MK 6 fisksjá.
Dýptarmælir: Marconi Fishgraph II.
Asdik: Simrad Sonar SL.
Netsjá: Kelvin Hughes kapalmælir með MS 44
skrifara.
Talstöð: Redifon GR 497, double side band.
Örbylgjustöðvar: Tvær Sailor RT 144 B.
Sjóhitamælir: Dytek.
Auk áðurnefndra fjarskiptatækja eru fullkomin
loftskeytatæki frá Redifon í skipinu. Af öðrum
tækjabúnaði má nefna Redifon kallkerfi. Átaks-
mælar eru fyrir togvíra frá Humber St. Andrews.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna: Einn
sex manna slöngubát með utanborðsvél, fjóra 12
manna RFD gúmmíbjörgunarbáta, tvær Marconi
neyðartalstöðvar og tvö reykköfunartæki.
ÆGIR — 613