Ægir - 01.11.1980, Blaðsíða 60
ÁTÆKJAMARKAÐNUM
Simrad SM 600 Sonar
Norska fyrirtækið Simrad A/S er að koma með
nýtt asdiktæki á markaðinn, sem nefnist SM 600, og
var það m.a. kynnt bæði á World-Fishing sýning-
unni og Nor-Fishing sýningunni s.l. sumar.
í stórum dráttum byggir SM 600 á ST-sonarn-
um, og CD-myndtölvunni sem tengist honum, en
helzta nýjungin frá fyrri asdiktækjum frá Simrad
er fjölgeisla botnspegill og myndskjár sem sýnir í
lit.
Botnspegillinn sendir út og tekur á móti 17 sjálf-
stæðum geislum, sem hver tekur yfir 5°, þannig að
ein útsending þekur 85° geira. Mögulegt er að
mjókka þennan sendigeira t.d. með færri geislum.
Fyrri asdiktæki frá Simrad hafa sent út einn geisla.
Sá hluti botnstykkisbúnaðarins, sem nefnist dóm-
kerfi, er hliðstætt dómkerfi ST-asdiktækisins, þ.e.
botnspegillinn er umluktur gúmmídóm, sem fylltur
er af sjó.
Sjón- og stjórntækið er búið 14” litaskjá og eru
endurvörp frá fiskitorfu, og ýmsar tölulegar upp-
lýsingar, sýndar með sex mismunandi litum. Sú
mynd og þær tölulegu upplýsingar, sem fram
koma á skjánum eru að öðru leyti hliðstæðar og
fram koma á CD-myndtölvunni. Á skjánum kem-
ur fram lárétt mynd af staðsetningu og stefnu
skips, og feril þess síðustu mínúturnar (hægt að
velja mismunandi tímalengd) og staðsetning fiski-
torfu ásamt stærð, stefnu og hraða hennar. Þétt-
leiki torfu er gefinn til kynna með þremur mis-
munandi litum, allt eftir styrkleika endurvarpa.
Hægt er að velja um afstæða mynd, þ.e. skip kyrrt
á skjánum, eða sanna mynd, þ.e. skip hreyfist
(norður upp) en endurvarp í kyrrstöðu. Með inn-
byggðri minniseiningu er unnt að varðveita upplýs'
ingar frá allt að níu endurvörpum (fiskitorfum)-
Tölulegar upplýsingar, sem koma fram á skjánum
eru dýpiskvarði lengst til vinstri og má þar lesa
dýpt fiskitorfu og þéttleika. Lengst til hægri á
skjánum koma fram upplýsingar um halla botn-
spegils.
Sendiorka SM 600 er 4 KW og hann vinnur á
tíðninni 34 KHz. Leitarsvið er frá 250-3000 m og
langdrægni miðað við meðalfiskitorfu er um 2000
m. Hægt er að halla botnspegli niður í 90°. Ha-
marks púlslengd er 110 millisek. Leitarmöguleikar
eru handvirk leitun, sjálfvirk leitun í þrepum og
sjálfvirk samfelld leitun.
SM 600 sónarinn er nauðsynlegt að tengja inn a
vegmæli og gyróáttavita. Sem viðbótarbúnað er
unnt að fá skrifara með 8” þurrpappír og auka-
myndskjá, 14” eða 20”. Þess má geta að unnt er
að skipta á ST botnspegli og SM botnspegli.
Umboð fyrir Simrad A/S hér á landi hefur Frið-
rik A. Jónsson h/f, Reykjavík. Samkvæmt upplýs'
ingum umboðsins liggur ekki fyrir hvað tækið
kemur til með að kosta. Gert er ráð fyrir að SM
600 komi á markað á miðju næsta ári.
Halli spegils----------
Sendigeiri ____________
Dýpt og þéttleiki torfu
Fiskitorfa ____________
Stefna og hraði torfu -
Bauja------------------
Skipið ----------------
Ferill skipsins________
Fiskitorfur -----------