Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1982, Page 10

Ægir - 01.02.1982, Page 10
Heimir Þorleifsson: Um togarann Coot Svar við greinum Ásgeirs Jakobssonar í október og nóvember blöðum Ægis I. Inngangur / október og nóvember blöð- um Ægis 1981 birtust greinar eft- ir Ásgeir Jakobssons rithöfund undir titlinum ,,Sú saga finnst ekki á söfnum....“. Greinar þessar voru að nokkru helgaðar mér, einkurn vegna ritsmíðar sem ég hafði birt í Morgunblað- inu á janúar 1980. Ásgeir fjallar einnig um nokkur atriði, sem birtust í bókinni Saga íslenzkrar togaraútgerðar fram til 1917, en hún kom út árið 1974. Flest um- ræðuefni Ásgeirs eru um togar- ann Coot, en áðurnefnd Morg- unblaðsgrein fjallaði um hann og kútterinn Sigurfara. — Ég hef nú beðið forráðamenn Ægis að birta þann hluta af Morgun- blaðsgreininni, sem fjallaði um Coot, en vera má, að skrifin um Sigurfara birtist síðar í tímarit- inu. Á eftir Morgunblaðsgrein- inni koma nokkrar athugasemdir við Ægisgreinar Ásgeirs. — Eins og sjá má á greininni hér á eftir, var hún að nokkru leiðrétting á ýmsum villum, sem áður höfðu slœðzt inn í Hlaðvarpa Morgun- blaðsins. Ég vil sérstaklega taka fram, að í þeirri grein var Einar Þorgilsson í Hafnarfirði eini Cootverjinn, sem nafngreindur var. Þess vegna fjallaði ég nokk- uð um þátt annarra manna í út- gerð Coots og benti á, að Einar réð ekki einn ferðinni í um- ræddri útgerð. I Ijósi þessa verða menn að skoða skrifin um Einar, og það var auðvitað ekki œtlunin að halla á hann. Hugmyndin var að benda á hlut annarra Coot- verja til jafns við Einar. II. Morgunblaðsgreinin um togarann Coot Hinn 1. desember síðastliðinn gat að líta í Hlaðvarpa Morgun- blaðsins stutta grein um tvö skip, sem kunn eru í útgerðarsögu ís- lendinga, togarann Coot og kútt- erinn Sigurfara. Tilefni þessarar greinar hefur efalaust verið það, að ritstjóri Hlaðvarpans hefur komizt yfir myndir af skipunum tveimur og hefur viljað kynna þær lesendum blaðsins. Er ekki nema gott um það að segja, en því miður hafa nokkrar villur slæðzt inn í greinina, sem leið- rétta þarf. Auk þess langar mig til þess að koma á framfæri nokkrum atriðum úr sögu þess- ara skipa, sem nýlega hafa kom- ið í leitirnar í skjalabögglum á Þjóðskjalasafni. Meðal þess eru afsalsbréf fyrir báðum skipun- um, útgefin í Bretlandi, þjóð- ernisskírteini, skrásetningarskír- teini, útdráttur úr fundargerðar- bók Fiskveiðahlutafélags Faxa- flóa, bréf um ósk um nafna- breytingu á kútternum Guðrúnu Blöndahl í Sigurfara, skipshah1 arskrár og fleira. Togarinn Coot (ekki Coo||, var keyptur til íslands árið 19 , (ekki 1904) og var afsalsbrt fyrir honum undirritað í Abef deen hinn 19. janúar 1905. Une! þetta afsalsbréf rituðu sem se- endur forstjórar útgerðarfél3^, The Silver City Travvl'1! ms Company Limited og hétu Þel' William Allan og James Wichie. Ekki er ljóst, hve!s' lengi togarinn hefur verið í el- þessa útgerðarfélags, en smíða ur var hann í Glasgow árið 1° (ekki í Boston árið 1890). ^ , þetta kemur fram vitnisburði*1. bráðabirgða þjóðernisskírteibj sem danski konsúllinn í Leith 6 út hinn 28. febrúar 1905- H1 sama kemur fram í skráse111 ingarskírteini fyrir skipið, se gefið var út i Hafnarfirði h'11, 28. apríl 1906. Þar má einnig si|J að skipasmiðir voru W. Ha1!1. ton & J. Hamilton og vél sH^ ins var smíðuð hjá D. Rowa11 j Son líka í Glasgow. Ætti því að þurfa að efast um skozkt gett' erni Coots. — Á áðurnefndu Á' sali fyrir Coot er Arnbjð^ Ólafsson frá Hafnarfirði * vera Keflavík) einn talinn kajtP andi skipsins, en hann ritarsl í afsalið undir yfirlýsingu P j efnis að hann hafi keypt sh'P 58 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.