Ægir - 01.08.1982, Blaðsíða 12
um. Hún gefur yfirlit yfir meðallengd hvers aldurs-
flokks. Samkvæmt þessu yfirliti er árlegur vöxtur
blálöngunnar um 5 til 6 cm (að jafnaði 5.9 cm).
Tvö fyrstu árin hlýtur vöxturinn að vera miklu
hraðari, en okkur vantar upplýsingar um aldur á
blálöngu undir 30 cm, við höfum fengið 33 cm blá-
löngu, sem var tveggja ára. Frá seiðarannsókn-
unum vitum við, að seiðin eru orðin 8—10 cm áður
en þau leita botns. Samkvæmt þessu vex blálangan
20—30 cm fyrstu 2 árin.
Lítið mun vera af blálöngu í afla undir 60 cm
þ.e. um 6 ára og yngri, og af fullum krafti kemur
hún ekki í veiðina fyrr en 9—10 ára og er þá um
75—80 cm.
Það er greinilegur munur á vexti kynjanna, eins
og sjá má á mynd 1 og í töflu 1. Hrygnurnar vaxa
hraðar en hængarnir og við sama aldur er þessi
munur frá 1 til 9 cm. Þannig er meðallengd 10 ára
hrygnu 82.01 cm en 10 ára hængs 80.84 cm.
Mynd I: Vöxtur blálöngu fyrir hœnga (cr cr) og hrygnur (9 9)
uðskilin.
Stærðarmunur kynjanna eykst með aldri og hjá 15
ára fiski er hann orðinn 9 cm, en lengra nær
samanburður okkar ekki. Þetta kemur einnig fram
á mynd 1. Til 10 ára aldurs er stærðarmunuf
kynjanna nokkuð jafn, en eftir það eykst hann-
Það er einnig munur á kynjunum hvað sne
kynþroska. Minnstu kynþroska hængar eru
63—65 cm, en fundist hafa ókynþroska hsenga’
sem orðnir eru 98 cm langir. Minnstu kynþr0
hrygnurnar voru hins vegar 71 cm, en ókynÞr0
hafa þær fundist allt að 110 cm.
Samanburður á fjölda kynþroska og ° ;
þroska fiska leiddi í ljós, að 50°7o hænga var k> ^
þroska 75 cm og 9 ára, en tilsvarandi tölur > ,
hrygnur eru 11 ára og 88 cm. Hængarnir verða P
kynþroska 2
hrygnurnar.
árum yngri og 13 cm
minm
en
Aflasamsetning
Mynd 2 sýnir hlutdeild (%) hinna ýmsu nrSa°®,
í afla íslenskra togara árin 1980 og 1981. Það s
tekið fram, að þetta línurit nær aðeins
gotstofnsins, þ.e. frá svæðinu suður af ve
aðskilin og samanlagt.
404 — ÆGIR