Ægir - 01.08.1982, Blaðsíða 44
850 I. palltankur, fyrir sýrur og matarolíur, trékassinn er til að
vernda tankinn í flutningum og notaður ef þarf að stafla hátt
upp í skemmu.
Mesta bylting í öryggi við pallaflutninga, var til-
koma plastkrumpu-hettunnar, (polyethylen shrink-
film). Plastefnið hefur þann eiginleika að það
skreppur saman við hita, efnið er sterkt og látið ná
niður á pallinn, þannig að það festir vöruna ræki-
lega við hann.
Algengast er hjá stórum verksmiðjuframleið-
endum að pallinum með vörunni á sé rennt á færi-
bandi í gegnum hitaskáp, sem jafnframt klæðir
hettuna á og krumpar hana saman.
Fyrir minni framleiðendur, sem ekki hafa stöð-
uga færibandaframleiðslu eru ódýrar gas-hitabyss-
ur hentugar. Þær eru uppgefnar fyrir að krumpa
saman yfir venjulegan transitpall 1200—1000 á
u.þ.b. einni mínútu. 11 kg gasflaska á að vera
nægjanleg fyrir 300 pallhlöss.
Einnig hafa staðlaðar pakkaeiningar stuðlað að
stöðugleika á pöllum.
Annar kostur við pallhleðslu er að snertanlegt
yfirborð pakkahleðslu minnkar. Sem dæmi má
taka að ef 8 pakkar eru á palli í 2 hæðum, minnkar
snertiflötur pakkanna um 50%.
Fyrir utan þá kosti sem plasthettan hefur, að
verja vöruna fyrir vatni og vindum í flutningi og
geymslu utanhúss, eru til á markaðinum ýmsar teg-
undir af grindum og rekkum sem verja vöruna
Einfalt dekk.
fyrir skemmdum vegna álags við
hruni og spara mjög mikið húsnæc.
ur og móttakendur og alla þá sem þurfa að
uppstaflaða vörur.
uppstöflun e^a
■ senden0'
Kostnaður
Kostnaður við pökkun með palli, polyethy'^
hettu og hitun með gasi. Stærð hleðs
1200x1000x1500 mm.
Trépallur: Gerð 4ra hliða opnun, opinn botn.
Yfirdekk: 7 stk. 1000xl20xl6mm Verð
Slár: 3 stk. 1200x98x2 lmm
Bitar: 6 stk. 140x95x95mm
Bitar: 3 stk. 95x95x95mm
Botn: 5 stk. 1000x98xl8mm kr. 150,0°
Polyethylen hetta: 2300x2200x0,15mm kr. 21,0° 11,6°
Gas: (11 kg. flaska) 0,04 kg. kr.
Samtals efniskostnaður við 1,0—1,5 tonn: Alls kr. 182,6°
Með skynsamlegri endurnýtingu á pöllum er
að áætla kostnaðinn u.þ.b. kr. 110,00. 3
Að lokum vil ég vona að pallflutningar íslens ^
útflytjenda verði árangursríkir og hagkvsem*r
öllum stigum flutningana.
Tvöfalt dekk.
436 — ÆGIR