Ægir - 01.04.1983, Síða 52
NÝ FISKISKIP
Sléttanes ÍS-808
Fremst á neðra þilfari er stafnhylki f>'r'r
brennsluolíu, þá geymsla, íbúðarými, vinnuþilfar
með ísgeymslu fremst fyrir miðju og kælivélarým1
b.b.-megin, og fiskmóttöku aftast. Aftast f>rir
miðju er stýrisvélarrúm en til hliðar við stýr>s
vélarrúm og fiskmóttöku er netageymsla og dslu
rými b.b.-megin, en s.b.-megin er verkstæði og
rými fyrir rafbúnað togvindna. Á miðju vinnuÞ1
fari, úti í b.b.-síðu er dælurými, en í s.b.-síðu
vélarreisn með rými fyrir oliukyntan ketil.
26. febrúar s.l. bœttist nýr skuttogari við fiski-
skipastól landsmanna er Sléttanes IS-808 kom til
heimahafnar sinnar, Þingeyrar, í fyrsta sinn.
Sléttanes ÍS er smíðað hjá Slippstöðinni h/f á
Akureyri og er smíðanúmer 65. Þetta er sjöundi
skuttogarinn, sem smíðaður er hjá stöðinni, en áður
hefur hún afhent: Guðmund Jónsson GK (nú
Breki VE), Óskar Magnússon AK, Björgúlf EA,
Sigurbjörgu ÓF, Kolbeinsey ÞH og Örvar HU.
Tvö fyrsttöldu skipin eru jafnframt búin til nóta-
veiða.
Skipið er að stœrð og byggingarlagi eins og
Örvar HU, en að fyrirkomulagi líkist það mjög
Kolbeinsey ÞH.
Eigandi Sléttaness ÍS er Fáfnir h/f á Þingeyri, en
það fyrirtœki á fyrir skuttogarann Framnes I ÍS,
sem smíðaður var í Noregi árið 1973. Skipstjóri á
Sléttanesi ÍS er Vilhelm Annasson og 1. vélstjóri
Guðmundur Þ. Ragnarsson. Framkvœmdastjóri
útgerðar er Bjarni Grímsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smiðað úr stáli, samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas, í flokki iji 1A1,
Stern Trawler, Ice C, ij( MV. Skipið er skuttogari
með tveimur þilförum stafna á milli, skutrennu
upp á efra þilfar, lokaðan hvalbak á fremri hluta
efra þilfars og tveggja hæða yfirbyggingu,
íbúðarhæð og brú, aftantil á hvalbaksþilfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum i eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir brennsluolíu; há-
geyma fyrir brennsluoliu ásamt keðjukössum;
fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu
(framantil) og ferskvatn (aftantil); vélarúm með
brennsluolíugeymum í síðum og vélgæzluklefa
fremst b.b.-megin; og brennsluoliugeyma aftast í
skut.
Mestalengd .......................... 50.90 ni
Lengd milli lóðlína ................. 44.75 111
Breidd ............................... 9.76 111
Dýpt að efra þilfari ................. 6.74 n1
Dýpt að neðra þilfari................. 4.44 n1
Eiginþyngd............................. 820 1
Særými (djúprista4.39m)............... 1162 1
Burðargeta (djúprista4.39m)............ 342 1
Lestarrými ............................ 510 m3
Brennsluolíugeymar (svartolía) ........ 127 m
Brennsluolíugeymar (dieselolía) ........ 20 m
Daggeymar.............................. 2.9 m
Ferskvatnsgeymar ....................... 50 m
Ganghraði (reynslusigling).............. 14 hn
Rúmlestatala .......................... 472 brl-
Skipaskrárnúmer....................... 1628
Fremst á efra þilfari (í hvalbak) er veiðarf2era
geymsla og aðstaða til viðgerða á veiðarfærum. el1
þar fyrir aftan koma þilfarshús meðfram báðun1
síðum og ná þau rétt aftur fyrir skipsmiðju. í ÞeSS
um þilfarshúsum eru íbúðir ásamt klefum f>'r
ísvélar og verkstæði. Milli þilfarshúsa er gangur
fyrir bobbingarennur. Togþilfar skipsins er aftan
við þilfarshúsin og tengist áðurnefndum gang1-
Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu
greinist hún í fjórar bobbingarennur sem liggJa
að
til
gangi og ná fram að stefni, þannig að unnt er
hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar
veiða. Á miðju togþilfari, sitt hvoru megin erU
síðuhús, b.b.-megin er stigahús niður á vinnu
þilfar, en s.b.-megin er vélarreisn, og i henni er
rými fyrir afgasketil. Yfir afturbrún skutrennu ef
toggálgi, en yfir frambrún skutrennu er bip°d'
mastur.
Hvalbaksþilfar er heilt frá stefni aftur að skips'
miðju, en þar greinist það í tvennt og liggur meö
212 —ÆGIR