Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1983, Side 18

Ægir - 01.06.1983, Side 18
Fylling þurrkarans skal vera sem mest, svo nýtnin sé í hámarki. Fyllingin er góð, ef ekki sér í eldinn, þegar litið er inn í þurrkarann frá endakassanum. En þetta reynir mjög á þurrkaramótorinn, sem tekur aukinn straum. Því þarf að gæta þess, að yfirlesta hann ekki. Sé fylling góð, geta orðið miklar sveiflur á bæði hitastigi og rakastigi mjölsins, þar sem það er mælt við endakassann. Þrjú stjórntæki eru til ráðstöf- unar, þ.e. olíugjöfin, loftstreymið um þurrkarann og loks magnið af nýju hráefni, sem keyrt er í þurrkar- ann. Oftast láta menn sér nægja olíugjöfina eina til stýringar í þurrkaranum, en það heppnast ekki vel, nema fylling þurrkarans sé léleg. Ekki er hægt að ná mestu hagkvæmni í rekstri þurrkarans, nema hann sé smíðaður af mikilli fyrir- hyggju. Stærð skóflanna í honum skipta miklu máli, og þá sérstaklega staðsetning og stilling endurkasts- skóflanna, sem eiga að gefa besta mögulega efnis- dreifingu og jafnt hitastig í þurrkaranum. Af þessu má vera ljóst, að alls ekki er auðvelt að reka þurrkar- ann með mestri mögulegri hagkvæmni. Hins vegar eyðast svo miklir peningar í illa reknum þurrkara, að það má kosta til þess verulegum upphæðum að ná góðum tökum í rekstri hans. Litlar tilraunir hafa verið gerðar með þetta mikil- væga rekstrartæki hérlendis. Því er lítil von til þess, að lausnin á sjálfvirkum rekstri þurrkarans sé fundin. Samt hefur miðað talsvert áleiðis. Þannig er orðið viðráðanlegt að stýra olíugjöf þurrkarans með hjálp tveggja mælinga, þ.e. mælingu á lofthita í endakassa þurrkarans og á rakastigi mjölsins, sem kemur úr endakassanum. Sjálfvirkur búnaður sér um að vinna úr þessum mælingum, og senda stýrimerki til mótors- Hœðarmœlir á soðeimingartœkjum lœtur lílið yfir sér, en vinnur verk sitt af hinni mestu prýði. ins, sem stjórnar olíugjöfinni, svo rakastig mjölsins haldist sem jafnast. Með þessu móti er þurrkaramaðurinn losaður viö stærstan hluta vinnu sinnar, og getur því snúið sér að því að halda hráefnisflæðinu í gegnum verksmiðjun*' sem jöfnustu. Niðurstöður Nú hefur verið rakið, hvernig má beita sjálfvirkm á hin ýrnsu tæki í fiskimjölsverksmiðjum. Ekkert a þessu er ímyndun, heldur hefur þessari tækni ven beitt í verksmiðjum hér heima á íslandinu góða. En hvað sem líður stýringu einstakra tækja, þá er þ° mikilvægast að sá, sem rekstrinum stjórnar, hafi f11'1’ yfirlit yfir rekstur einstakra tækja. Auk þess þar hann að geta hagrætt rekstrinum, svo allt fljot' mjúklega áfram. Þessu takmarki er auðveldast að n*1 með til þess gerðu stjórnherbergi. Þar verða mælar og ljós fyrir allar stærðir sem skipta máli og áður haf*1 verið taldar, t.d. hæð hráefnis í hálsi sjóðara °2 pressa, hitastig úr sjóðara, hraða pressa, ástand skil' vinda og soðeimingartækja, og alla þætti í rekstr1 þurrkarans. Ekki þarf rekstrarstjórinn að fara út ti þess að líta á einstök tæki, heldur beinir hann fjar stýrðri sjónvarpsmyndavél að því, sem hann hefuf áhuga á. , f Mest af tækjunum gengur sjálfvirkt, og aðeins þar að þrýsta á fáeina hnappa til þess að hafa áhrif á rekst urinn. Viðvörunarkerfið sér um að vakta allar stærðir, og ef eitthvað hegðar sér illa, þá gellur vi bjalla, og bilunin er skrifuð út á prentara. Með þess11 móti þarf mun færri rekstrarmenn á hverja vakt ej' áður hefur þekkst. Erlendis hafa menn jafnvel g®1 við þá hugmynd, að búa verksmiðjur svo mj°2 tækjum, að einungis þurfi tvo menn á hverja vakt. Það besta við þessa sjálfvirkni er, að ef setja sjálfvirkni á einstök tæki verksmiðjunnar, þá kostaf ekki mikið í viðbót að setja upp tækin í stjórnherberg inu, sem gera miðjustýringuna mögulega. í öllum11 fellum er hagkvæmast að framkvæma svona stýring‘'r með tölvum, og þær geta vel bætt á sig einu stjórnl"r bergi. í tveimur íslenskum verksmiðjum hefur verið far1^ út í sjálfvirkni af þessu tagi, og það í verulegum ma-’11’ Það eru verksmiðjurnar í Krossanesi, sem áður 'l,r sagt frá, svo og Hvalstöðin í Hvalfirði. Hönnun þessara stjórnkerfa hefur að öllu le' verið unnin hérlendis, og er óhætt að segja, að l"111 hafi tekist það vel, að erlendir menn hafa séð ástæ til að koma hingað og líta á þau. 298 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.